Djöfulsins
andskotans drullu bésefans leppafokkinglúða-halar maður! Er það virkilega svona
sem fólki datt í hug að væri sniðugt að haga hlutunum hjá okkur í þessu
samfélagi? Á morgun á maður að kjósa forseta, forseta Íslands sem enginn veit
hvaða hlutverki á að gegna og allra síst þeir sem eru að bjóða sig fram. Einhvern
veginn hefur maður gengið að því sem gefnu, fyrst í gegnum æskuna svo táningsárin,
alveg að því að verða fullþroska einstaklingur, að það væri eitthvað kerfi eða
lög sem gerðu öllum ljóst sem leituðu hvernig væri í pottinn búið. Í dag er
ekki hægt annað en að efast um að nokkurt slíkt sé raunverulega til. Til
staðfestingar skulum við skýra um hvað ræðir. Helstu stofnanir þessa lands, forseti,
Alþingi og Hæstiréttur, svokallað þrískipting valds urðu eigin ágæti að bráð og
elska nú ekkert heitar en að stara inn í neðra meltingaropið á sjálfum sér svo
þær þurfi ekki að horfa framan í vonsvikið, undrandi fólk sem leitar helst
skjóls í sjálfsblekkingu til að þurfa ekki að brjóta sig útur þægindamenginu og
nú gætu verið aðeins 11 mánuðir þar til Flokkurinn kemst aftur til valda. Löggjafarvald,
framkvæmdarvald og dómsvald. Jíbbífríkinhú-ladí-ha. Skv. Stjórnarskrá Íslands
fara forseti og Alþingi með löggjafarvaldið, forseti og ríkisstjórn með
framkvæmdarvaldið og dómstólar með dómsvaldið.
Nú
er allskonar fólk að bjóða sig fram til Forseta Íslands. Orðræðan er slík að hr.
Ólafur Ragnar Grímsson verður að halda áfram sem forseti því hann kann að leiða
okkur í gegnum óvissutíma sem eru framundan en víst ekki að handan. Einnig
hefur maður heyrt nefnt að af praktískum ástæðum er best að halda honum á stóli
þar sem hann væri hvort eð er að þiggja laun svo best að láta kauða vinna fyrir
þeim. Þóra Arnórsdóttir dansar eftir strengjum Le‘Macks, sem veita þau frábæru
ráð við athugasemdum hr. Ólafs Ragnars Grímsonar sem beint er til Þóru að sýna
fólki andstæðuna. Hr. Ólafur bendir á að hún er ung og þá ákveður kaldi Le‘Macks
að best sé að gera Þóru eldri en hún er og tóna fötin frú Vigdísar
Finnbogadóttur stíl. What a fokking spin chaps, well done, you must be very brain-tired! Jæja, málefni... engin til að
tala um. Einn frambjóðandi ætlar að stíga fram og mótmæla sitjandi ríkisstjórn
ef það er „meirihluta vilji fólksins“. Meirihluti fólksins kaus sitjandi
ríkisstjórn og mun vonandi hafa kosið þá ríkisstjórn sem þessi ágæti
frambjóðandi ætlar að mótmæla. Ætli hún sé að tala um þröngan vinahóp sem
hittist reglulega á bar og fær sér í tána og segir harmsögur af ástandinu í
landinu?
Hæstiréttur
er farinn að dæma eftir geðþótta og það kann ekki góðri lukku að stýra. Allir
vinir Daníels farnir og enginn Daníel. Álitið var að Gunnar
Hafnarfjarðarmorðingi væri sakhæfur þrátt fyrir að nokkrir sálfræðingar hafi
bent á annað. Fólkið þurfti að fá blóð á tennurnar og finna að réttlæti hafi
sigrað eða átt sér stað á einhvern undarlegan einfeldningshátt. Hæstiréttur er
með klofna tungu því hann fór alltof geyst af stað með að bjarga frænda undan
gengistryggðu lánunum sem kom í ljós að voru ólögleg þó svo að allir, allir,
allir sem ekki höfðu vitið með sér heimtuðu erlent lán til að græða.
Gengisáhætta var fasti sem hljóðaði 15% max, fólk trúir öllu því sem það heyrir, eitt sinn var hægt að ganga fram af jörðinni gengi man nógu langt í eina áttina. Gengistryggð lán með lágum vöxtum hljómaði vel en var of gott
til að vera satt, ekki rétt? Það er kannski lexía í þessu en ég efa það þar sem
allir velja frekar að vera fórnarlömb kúgunar en fórnarlömb eigin græðgi og
forheimsku.
Jæja,
Alþingi Íslands. Ekki verður sagt að það hafi verið tekist á með miklum orðaskylmingum
í endalausu orðaþvaðri og að ræða skuli hafa það eitt að markmiði að vera
löng er ekki vænlegt á skemmtun. Málþóf réð ríkjum þar sem það átti að ráðast á
peningana hjá frænda og láta hann greiða fyrir að sitja einn að og éta úr kjötkötlum fólksins.
Þvílíkt óréttlæti hafði aldrei heyrst fyrr í sölum Alþingis. Við skulum samt
ekki örvænta því einn stjórnarandstöðuþingmanna hefur sagst ætla breyta kerfinu
í fyrrverandi horf komist Flokkurinn til valda. Þá dugir sennilegast fyrir
útgerðirnar að kaupa rútu undir rassinn á sjómönnum og gefa þeim að lepja á
meðan þeim er ekið á kjörstað. Það eru hórur allstaðar. Næst legg ég til að við
læsum dyrum Alþingishússins utan frá með 63 kvikindi þar inni, valda fulltrúa
þjóðarinnar að sjálfsögðu, og opnum ekki fyrr en niðurstaða hefur verið fengin
í málið.
Það
er bjart framundan fólk, ekki örvænta, næst þegar þið sjáið stjörnu, athugið hvort um ykkar eigið rassgat er að ræða.
Annars...
góðar stundir.