Tuesday, November 27, 2012

Looking the part.



Cyril Smith ráðherra fyrir Liberal Democrats í bresku ríkisstjórninni fyrir langalöngu nauðgaði börnum á sjöunda áratugnum og lést fyrir tveimur árum, rétt á undan Jimmy Saville. Þeirra beggja var sárt saknað á sínum tíma vegna missis en í dag vegna hefndar, gott legacy. Nick Clegg formaður Liberal Democrats í dag og hálfgerður framsóknarleiksoppur hélt hjartnæma ræðu við útför hr. Smith og þarf nú að svara fyrir það. Framkvæmdastjóri BBC, George Entwistle sagði af sér vegna þess að fréttaskýringaþátturinn Newsnight ásakaði fyrrverandi þingmann um að hafa káfað á börnum sem hann gerði ekki. Leiðinlegt, en nú er hann fundinn þingmaðurinn sem átti að hafa og því óskar áðurnefndur Hr. Entwistle að fá fríðindabættari starfslokasamning (sem hljóðar nú uppá GBP 450þús.). BBC hafði reyndar farið af stað með fréttir að ITV fréttamanni hefði orðið á í messunni en það hljóðnaði fljótt. Jimmy Saville dugði ekki til en þegar maður var ranglega ásakaður um glæpinn sem Jimmy karlinn framdi þurfti að segja af sér. Svo reynist barnaníðingsþingmaðurinn hafa verið ráðherra og ásakanir kæfðar snöggt og örugglega á þeim tíma er brotin áttu sér stað. Sama á við um fyrrnefndan Jimmy. Ég mæli endilega með að fólk skoði myndir af tveimur ofangreindum. Gjörið svo vel:
 

Teddible maður!

Afsláttur.



Fallega lágskýjað og grátt þegar sólin fer að skína.
30 kr. afsláttur á hangikjötssamloku með engu hangikjöti.
Rekst svo á skilti sem á stendur: „Great minds discuss ideas; average minds discuss events; small minds discuss people“.
Ég veit ekki... mér sýnist vera að draga fyrir aftur.

Monday, November 12, 2012

StóriÉg Vakti.



Gott kvöld. Dauðþreyttur angi hérna megin sem hef þurft að taka á honum stóra mínum og vakað allar lifandi stundir til að geta gert það sem mér hefur borið að gera. Gaman. Ég tapaði 500kr. á því að veðja á móti vilja mínum, aldrei þótt gáfulegt svo sem en ég gat þá glaðst í báðar áttir. Ég var skíthræddur að Mitt minn myndi verða næsti forseti BNA. Skítskíthræddur.