"The only thing necessary for the triumph of evil, is for good men to do nothing." (Edmund Burke 1729-1797)
Tuesday, September 18, 2007
Rónaraup
Tími
Hann át úrið,
ropaði upp klukkustundunum,
tuggði mínúturnar,
með þykku lagi af sekúndum.
Hvað er tími?
Jú, tími er bara orð,
orð sem hefur mikla þýðingu,
því án tímans væri mannkynið,
KLUKKULAUST!!
Strákur
Dagurinn í dag
Dagurinn í dag byrjaði á því,
að ég upphugsaði eitt ákveðið... mál,
ég fór ekki með krónu í vasann,
til Reykjavíkur,
nú er ég búinn að byggja upp úr því,
ég er með tíu þúsund kall í vasanum,
og mér líður vel.
Þannig er dagurinn í dag!
Strákur
Þreytt og sár
Hvað vil ég segja þér?
Ég hef svo mikið að segja þér.
Ég er þreytt og sár.
Af hverju ertu að horfa svona alltaf á mig.
Ef þú meinar ekkert með því.
Ég er alveg ófeimin,
að horfa framan í heimin.
Og mundu eftir því!
Kvikindi
No comments:
Post a Comment