"The only thing necessary for the triumph of evil, is for good men to do nothing." (Edmund Burke 1729-1797)
Wednesday, October 17, 2007
Bretar fara bara heim en koma aldrei til vinnu.
Sky fréttastofan greinir frá því í dag að innflytjendur séu að setja álag (strain) á skólakerfið, heilbrigðiskerfið og húsnæðiskerfið. Myndir sýndu frá því að pólskar bækur væru í bókabúðum, pólskar búðir væru til staðar og að pólskir byggingaverktakar væru með vinnu í Bretlandi. Þegar rætt var við einn slíkan innflytjenda þá sagði hann frá því að hann þekkti alls ekki marga breska byggingarverktaka, því hann ynni mestmegnis í hærri endanum (higher end) af samfélaginu. Þegar spurður að því hvort hann teldi pólskt fólk vera betri verkamenn (better workers) svaraði hann því að svo teldi hann vera og því til stuðnings bar hann mun á viðverustundum breskra og pólskra verkamanna. Breskir færu heim um 15:30/16:00 á meðan þeir pólsku mættu kl. 08:00 og færu heim kl. 18:00. Það væri gaman að vita hvenær þessir bresku mættu til vinnu og hve margar klukkustundir af uppgefnum vinnustundum fólkið væri við vinnu.
No comments:
Post a Comment