Saturday, January 14, 2012

Er ég nægilega auðmjúkur?

Hubris er aðgerð sem svívirðir og lítillækkar fórnarlambið, gerandanum til umbunar og yndisauka. Hugtakið hefur sterka kynferðislega tengingu og er gerandanum til mikillar skammar. Í grískri goðafræði kallaði hubris gagnvart guðunum fram Nemesis sem þýddi hvorki meira né minna en algjöra tortímingu gerandans. Grikkir persónugerðu örlög hefndar sem iðrunarlausa gyðju, gyðja hefndar. Nemesis var gyðja guðdómlegrar réttvísi gagnvart þeim sem féllu hubris að bráð. Nemesis gengur í málið þegar hvorki fórnarlambið né réttarkerfið getur séð málinu farveg til réttvísi, svo hver fái nú örugglega það sem hver á skilið. Hér að neðan er mynd af gyðjunni eins og Alfred Rethel túlkar hana árið 1837. 
Mér líst skrambi vel á það sem er að fara gerast á þessari mynd. Karlmaður á tilgangslausum flótta frá sjálfum sér og getur ekki horfst í augu við það sem er yfirvofandi. Eitthvað hefur hann gert sem hann hefði betur sleppt og er því Nemesis mætt til að segja honum að stundin sé runninn upp þar sem hann varð svo hrokafullur að svívirða fólk sér til yndisauka og upphefðar. Fari hann fjandans til og væri huggun í því að Nemesis gerði tilkall til allra gerenda. 
Just sayin‘

No comments:

Post a Comment