Saturday, February 18, 2012

KRC+1.


Viðfangið hefur innbyrt skammtinn eftir góðan undirbúning af stemningu og jíahi. Gó, kl. er 16:14.
Eftir um klst. fer viðfangið að virða fyrir sér hluti og undrast á sköpun þeirra og veru þeirra í vídd. Þegar um 2klst. eru liðnar hefjast ósköpin:
„Mér fannst eins og tíminn hefði stöðvast. Það var ekki þannig að ég hreyfði mig hægar heldur var augljóst að tíminn væri að stöðvast þar sem útvarpið, rás 1, gufan, hægði á sér líkt og haldið væri aftur af vinyl skífu. Ekkert hreyfðist og nú hefði maður haldið að þegar tími stöðvast yrði þögn en það var alls ekki svo, í útvarpinu heyrðist nú sónn þar sem tíminn hafði algjörlega stöðvast á þessum tón. Mér leist agalega illa á blikuna og hélt ég væri að fara fá hjartaáfall þar sem tíminn hafði stöðvast og þetta væri e.t.v. andlát mitt. Mér brá svo við tilhugsunina að ég hoppaði upp í loftið og fannst þá sem ég hefði komið hreyfingu á tímann. Ég stökk því aftur uppí loft og í þetta sinn ákvað ég að sparka fótunum í rassinn á sjálfum mér til að setja áherslu á löngun mína til að koma tímanum aftur á hreyfingu. Nú sá ég árangur af þessu og varð upprifinn, hoppaði uppí loft og sparkaði í rassinn á sjálfum mér hraðar og fastar og í hvert skipti mjakaðist hljóðið úr útvarpinu að því að vera útvarpssending en ekki sónn eingöngu. Ég hafði komið tímanum af stað. Gott og vel, ég þurfti samt að koma mér út úr húsinu þar sem allir veggir voru 4, + þak og gólf. Úti tók við ein sú undarlegasta sjón sem ég hef ei fyrr, né síðar, kynnst. Allur himininn var regnbogi, allur himininn var regnbogi sem var alstaðar. Hvert sem augað leit var regnbogi og ekki ský á himni.
Svo vaknaði ég heima um kl. 14:16.“
Þannig að þegar þið finnið ykkur í þeirri stöðu að tími virðist hafa stöðvast, þá er ráð.

No comments:

Post a Comment