Sunday, February 26, 2012

Sjálfsblekking.


Eftir að hafa varið 7klst í að bisa við verkefni sem ég taldi mig vera kominn með lausn á hef ég komist að þeirri niðurstöðu að lausnin hafi verið að öðru verkefni. Þannig að þegar ég hafði lokið þessu verkefni mínu, að ég taldi með ágætum, kom í ljós að verkefnið sem ég hafði leyst úr með lausninni minni var í rauninni ekki vandamálið né verkefnið sem ég hefði átt að vera fást við. Þetta ágæta verkefni sem ég leysti með lausninni á vandamáli sem var ekki vandamálið, átti að kosta mig 36þús. kr. gengið frá. Það sem sýnir sig svo sem vandamálið er öllu kostnaðarmeira og kostar 5x fyrrgreind fjárhæð. Mjög mikið. Svekkelsið felst í því að ég gat með engu móti greint hvort vandamálið ég átti að vera fást við fyrr en ég hefði lokið öðru hvoru. Eftir bjartsýnispepp og vísbendingar sem bentu á að ódýrara verkefnið væri vandamálið og það varð sjúkdómsgreiningin, hefst aðgerðin. Hún tók sem fyrr segir 7klst. og að henni lokinni var maskínan ræst. Þá kemur í ljós að meinið er enn til staðar. Meinið að þessu sinni var hljóð sem hljómaði líkt og lofti væri þrýst af miklum krafti í gegnum þröngt gat og myndaði einskonar spreyhljóð við gang bifreiðar. Við þessa síðari sjúkdómsgreiningu geri ég með grein fyrir að ég hafi látið blekkjast af sjálfum mér með óraunhæfri bjartsýni og trúgirni því það hentaði mér betur að það væri þessi lausn sem ég komst að og komst svo að sú lausn var ekki lausn á vandamálinu. Þetta þýðir að ég hafi varið 7klst til einskis þar sem sú vinna sem ég lagði í verkefnið sem var ekki lausnin mun vera fjarlægð að nýju til að framkvæma verkefnið skv. síðari sjúkdómsgreiningu. Jebbs, meiriháttar.
Ég hugga mig þó við að ég nýtti tímann einstaklega vel og veit nú meira en ég vissi áður. Einnig á þessum tíma sem talinn er í verkefnið eru 5 hurðir smurðar og opnast bæði innan og utanfrá. Ég hef lengi verið að velta fyrir mér að fá mér nýja bifreið vegna þess að kostnaðurinn við rekstur og viðhald er að verða manni um megn. Svo horfi ég á hann, með bæði ljósin skínandi skært að framan, skýr einsog glitrandi stjörnur. Hann er fallegur. Ég hef því ákveðið að láta verða af þessum fjárútlátum og verja þeim tíma með honum sem þarf til að leysa hitt verkefnið sem ég hefði átt að vera leysa. Hann á það skilið frá mér blessaður.

No comments:

Post a Comment