Tuesday, April 24, 2012

Um spíral og Sporöskju.

Rebranding er einsháttar eða algjör aðskilnaður, með nýju nafni, hugtaki, tákni, hönnun eða öllu ofangreindu, frá því sem var áður og þess sem er núna. Þetta er gert til að staðsetja vörumerki fyrirtækisins annarsstaðar í hugum fólks en þar sem það er nú staðsett. Til margs nýtilegt eflaust, en tískan hlýtur að grípa nokkra með sér þegar hún hleypur fram og til baka í tíma.
Í gær held ég hreinlega að ég hafi séð stjörnuþoku í fjarska á vesturhimni. Messier 110 (M110 og NGC 205) er sem ég kemst næst sporöskjulaga dvergstjörnuþoka sem hringsnýst um Messier 31 (M31 og NGC 224) yfirleitt kallað Andromeda sem er spíralstjörnuþoka álík okkar eigin Vetrarbraut. Það sem gerir Messier 110 áhugaverða sem stjörnuþoku er að hún er sporöskjulaga, hún inniheldur mikið ryk og hugsanlega nýlega stjörnumyndun, sem er víst óvanalegt fyrir svona sporöskjulaga stjörnuþokur.
Það er gaman til þess að vita að maður hafi þó allavega horft í áttina að þeim, spíral með sporöskju að danglast þarna vesturfrá.  

1 comment:

  1. http://bin.arnastofnun.is/leit.php?q=sporaskja
    Fletti þessu upp varðandi titilinn. Gott blogg.
    x E

    ReplyDelete