Rebranding er einsháttar eða algjör aðskilnaður, með nýju nafni, hugtaki, tákni,
hönnun eða öllu ofangreindu, frá því sem var áður og þess sem er núna. Þetta er
gert til að staðsetja vörumerki fyrirtækisins annarsstaðar í hugum fólks en þar
sem það er nú staðsett. Til margs nýtilegt eflaust, en tískan hlýtur að grípa
nokkra með sér þegar hún hleypur fram og til baka í tíma.
Í gær held ég hreinlega að ég hafi séð stjörnuþoku í
fjarska á vesturhimni. Messier 110 (M110 og NGC 205) er sem ég kemst næst
sporöskjulaga dvergstjörnuþoka sem hringsnýst um Messier 31 (M31 og NGC 224)
yfirleitt kallað Andromeda sem er spíralstjörnuþoka álík okkar eigin Vetrarbraut.
Það sem gerir Messier 110 áhugaverða sem stjörnuþoku er að hún er sporöskjulaga,
hún inniheldur mikið ryk og hugsanlega nýlega stjörnumyndun, sem er víst
óvanalegt fyrir svona sporöskjulaga stjörnuþokur.
Það er gaman til þess að vita að maður hafi þó allavega
horft í áttina að þeim, spíral með sporöskju að danglast þarna vesturfrá.
http://bin.arnastofnun.is/leit.php?q=sporaskja
ReplyDeleteFletti þessu upp varðandi titilinn. Gott blogg.
x E