Saturday, May 5, 2012

Fullt tungl í suðaustri að mér sýnist.


Tönnin er beitt. Sauðagæran er að falla en með því að jarma er hægt að  koma í veg fyrir frekari aukningu í spennustigi en hver í fjandanum er Chen Guangcheng? So far vitum við að hann er blindur kínverji sem slapp úr rammgerðu stofufangelsi í þorpinu Dongshigu í Shandong héraði um 500km frá Peking þar sem hann að lokum rambar inn um hurðir bandaríska sendiráðsins og þeir skella á eftir honum. Einu fréttirnar sem berast eru hetjufréttir af því hvernig hr. Chen, með sitt góða hjarta og blindu augu hefur brotist gegn ofvaldi og harðræði kínversku stjórnarinnar og virðist ætla hafa betur í vinsældarkosningum enda er þetta lítið annað en X-factor for the supposed intellects. Hr. Chen er hampað á margan hátt og nú lætur hæst að á árum áður vann hann ötullega að vitundarvakningu á vönun kvenna og nauðugar fóstureyðingar kínversku stjórnarinnar vegna laganna um eitt barn og eitt barn aðeins á hjón, geri ég ráð fyrir. Nú jæja, aftur að afrekinu, Hr. Chen á víst að hafa í skjóli nætur klifrað yfir tveggja metra háan vegg sem kínverska ríkisstjórnin lét reisa til að halda ólátabelgnum inni. Frá húsi og að þessum tiltekna vegg var flóðlýstur garður ásamt farsímabylgjubrenglurum en hann lét það ekki stoppa sig. Áfram gakk, yfir 2m vegginn og varði hr. Chen svo næstu 20klst. í að mjaka sér út í óvissuna þar sem hann að eigin sögn fellur við oftar en 200 skipti. Nú vill svo heppilega til að hr. Chen gengur rakleitt í flasið á samaðgerðarsinna í mannréttindabaráttunni sem ekur honum í bifreið sinni til Peking. Það gæti verið að ég sjái hluti sem eru ekki til staðar en hér er ég tilbúinn að segja að eitthvað sé bogið einhversstaðar.
BNA skuldar Kína gríðarlegar fjárhæðir í peningas og var altalað síðasta sumar að BNA myndu hugsanlega kjósa að lenda í vanskilum við Kínverja. Það að kjósa að greiða ekki hljómar undarlega betur en að geta ekki greitt.  Nú velti ég því fyrir mér af hverju vesturheimur er kallaður vestur þegar íbúar austanmegin í austurheimi benda í austur á vesturheim?
Logarnir eru greinilega farnir að ná til fitunnar.
Góðar stundir.

No comments:

Post a Comment