Komið að lokum 14.
júlí, Bastilludeginum myndu Frakkar kalla skepnuna víst. Þeir fagna því að
ráðist var á og Bastilluna s.k. og hún tekin yfir. Bastillan var kastali sem
hafði mörg hlutverk og eitt af því var fangelsi, fyrir oft pólitíska fanga, en
annað hlutverk þessa ágæta húss var geymsla fyrir púður og vopnabirgðir. Þegar
ráðist var inn, eftir að umsjónarmaður Bastillunnar hafði gefið skipun um að
opna hliðin svo ekki yrði úr blóðbað, létust 95 árásarmenn en aðeins einn
verjandi. Æsingurinn hefur greinilega verið það hressilegur að menn misstu sig
og fóru óvart að drepa sig. Göngum hægt um gleðinnar dyr gott fólk, líka þegar
það er búið að hleypa okkur inn.
No comments:
Post a Comment