Sunday, August 26, 2012

Vinur okkar Gregor.


Maður að nafni Gregor, situr náfölur í tölvustofu Odda, einum af byggingum Háskóla Íslands. Það eru próf og ég þarf að leggja hart að mér við slíkt nám og raunverulega nema það sem er verið að kenna. Ég rölti mér til hans og spyr hvernig hann hafi það og honum bregður þegar ég yrði á hann, honum er svo mikið niðri fyrir. Það var orðið að venju hjá okkur að fara útfyrir og reykja þegar við áttum stund og nú sýndist vera einmitt sú stund. Hann lítur upp á mig þar sem hann situr náfölur fyrir framan tölvu og segir mér að heimurinn sé að fara umturnast eins og við þekkjum hann, að það sé verið að fara ráðast á BNA. Nýju Jórvík nefndi hann til staðfestingar og sá sem myndi standa fyrir ráðum væri einn Osama Bin Laden, maður sem ég hafði aldrei þá, heyrt nefndan. Oft síðan. Ég var fullur efasemdar og hélt nú að loksins hefði ég hitt mann sem hefði lesið yfir sig, leiðinlegt að það hefði verið einn af mínum samt. Við fórum út að reykja.
Gregor: Ég er ekki spámaður, en ég sé það, ég veit að það er verið að fara ráðast á BNA. Ég sé það í ritinu og hvað það segir. Þú veist. Ég er að nema symbolisma, táknfræði og það liggur ljóst fyrir að Osama Bin Laden muni gera árás á New York.
DS: Hvernig veistu, hvað sástu?
Gregor: Í biblíunni.
DS: Hablaha, Gregor, slakaðu á.
Gregor: Nei, DS ég sá þetta og veit þetta muni gerast. Eins og ég segi þá er ég enginn spámaður, en ég er klár á þessu, sjáðu, og hann sýndi mér kafla í biblíunni þessu til staðfestingar. Opinberun Jóhannesar, skækjan mikla, 17 kafli eða hvað þetta nú er.

1Og einn af englunum sjö, sem halda á skálunum sjö, kom til mín og sagði: "Kom hingað, og ég mun sýna þér dóminn yfir skækjunni miklu, sem er við vötnin mörgu. 2Konungar jarðarinnar hafa drýgt saurlifnað með henni, og þeir, sem á jörðinni búa, hafa orðið drukknir af saurlifnaðar víni hennar."
Skækjan mikla er s.s. BNA.
3Og hann leiddi mig burt í anda á eyðimörk. Og ég sá konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum, og hafði það sjö höfuð og tíu horn. 4Og konan var skrýdd purpura og skarlati, og var búin gulli og gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan viðurstyggðar, og var það óhreinleikur saurlifnaðar hennar. 5Og á enni hennar var ritað nafn, sem er leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir hórkvenna og viðurstyggða jarðarinnar. 6Og ég sá að konan var drukkin af blóði hinna heilögu og af blóði Jesú votta. Og ég undraðist stórlega, er ég leit hana.
Konan sem um ræðir er Frelsisstyttan í New York. Hún er úr kopar og mun kopar víst vera rauður áður en hann veðrast.
7Og engillinn sagði við mig: "Hví ertu forviða? Ég mun segja þér leyndardóm konunnar og dýrsins, sem hana ber, þess er hefur höfuðin sjö og hornin tíu: 8Dýrið, sem þú sást, var, en er ekki, og það mun stíga upp frá undirdjúpinu og fara til glötunar. Og þeir, sem á jörðu búa, þeir, sem eiga ekki nöfn sín skrifuð í lífsins bók frá grundvöllun veraldar, munu undrast, er þeir sjá dýrið sem var og er ekki og kemur aftur.
9Hér reynir á skilning og speki. Höfuðin sjö eru sjö fjöll, sem konan situr á. Það eru líka sjö konungar.
Hér vildi Gregor meina að þessir sjö konungar hafi verið G7 og hún er einnig með sjö horn á kórónunni. Frelsisstyttan er þó hvorki með fjall á hausnum né situr hún á hornunum. Smáatriði víst.  
10Fimm eru fallnir, einn er nú uppi, annar er ókominn og er hann kemur á hann að vera stutt. 11Og dýrið, sem var, en er ekki, er einmitt hinn áttundi, og er af þeim sjö, og fer til glötunar.
Hér bendir Gregor réttilega á að það sem áður hét áður G6, svo G7 heitir einmitt G8 í dag.
12Og hornin tíu, sem þú sást, eru tíu konungar, sem enn hafa eigi tekið konungdóm, heldur fá vald sem konungar eina stund ásamt dýrinu. 13Þessir hafa allir eitt ráð, og máttinn og vald sitt gefa þeir dýrinu. 14Þessir munu heyja stríð við lambið. Og lambið og þeir, sem með því eru, hinir kölluðu og útvöldu og trúu, munu sigra þá, - því að lambið er Drottinn drottna og konungur konunga."
15Og hann segir við mig: "Vötnin, sem þú sást, þar sem skækjan situr, eru lýðir og fólk, þjóðir og tungur. 16Og hornin tíu, sem þú sást, og dýrið, munu hata skækjuna og gjöra hana einmana og nakta, eta hold hennar og brenna hana í eldi, 17því að Guð hefur lagt þeim í brjóst að gjöra vilja sinn og vera samráða og gefa ríki þeirra dýrinu, allt til þess er orð Guðs koma fram. 18Og konan, sem þú sást, er borgin mikla, sem heldur ríki yfir konungum jarðarinnar."
Þetta er augljóslega þvæla. En Gregor sagði okkur samt frá því að Osama Bin Laden myndi ráðast á BNA, NY nánar tiltekið, í maí 2001. Gott og vel.
Málið lítur því þannig við að hér hafi verið einn háskólanemi, tveir reyndar, með upplýsingar um að það væri árás á BNA í vændum, en meanwhile back at the ranch hafi engan órað fyrir slíku, ekki einu sinni leyniþjónusta BNA, með Donald Rumsfeld í fararbroddi. Háskólaneminn las þetta með táknfræði í gegnum bók bókanna for fríks sake, en Donald Rumsfeld bjó þetta til. Hr. Rumsfeld varð þó á að segja vini sínum frá þessu því George Walker Bush er enginn leikari eins og Ronald Reagan og gat ekki einu sinni þóst vera hissa er honum voru færðar fréttirnar að leikþátturinn væri hafinn. Hr. Malicious Drugconniving Littlemofo hefur þurft að fá samþykki, undirritað af aperapingjunkie whoreofachild mr. W. Gregor var heldur ekki hissa. Þegar við hringdum í hann þann 11/9'01, í miklu uppnámi yfir því að búið væri að ráðast á BNA, var hann í hljómplötuverslun hinn rólegasti og spurði mig hvort hann hefði ekki verið búinn að segja mér það. Ég svaraði játandi. Gott og vel.
Ekki éta skít gott fólk, ekki. 

Misbeind ýgi.


Það sást sérkennilegt rautt ljós á himni nú í kvöld. Sennilegast var það fitan að brenna af spikfeitu ræflunum sem léku stórt. Gott og vel.
Þetta er undarleg veröld sem maður er staddur í en stórum furðulegra er samfélagið sem við höfum ákveðið að mynda í kringum okkur. Hoppandi, skoppandi, húrrandi með hæi, höfum við talið best að vera þrælar að þykjustunni. Þykjustan er meiriháttar hafi maður ekki nokkra getu, metnað né ástríðu. Svo kom að því að allir máttu taka þátt í þykjustunni. Að sjálfsögðu ruku allir til að orði gefnu að taka þykjustunni lán til að kaupa hluti sem þeir áttu fyrir í þykjustunni. Þetta varð svo magnað að fólki var veitt lán á þykjustunni greiðslumat, fyrir hlutum sem það átti í þykjustunni og því þótti gott ráð að fá annað lán í þykjustunni til að kaupa nýtt innbú í þykjustunni. Nú þykjumst við vita hvar þykjustan hefst og í þykjustunni skiptir það máli. Í þykjustunni var ráðist á fjármálamiðstöð BNA 11/9’01. Þorsteinn Guðmundsson átti ljómandi fínan föstudagspistil síðast. Hann taldi að viðbrögð við reiði væru í öfugu hlutfalli við stærð lygarinnar sem að manni væri beint og nefndi þar einmitt ofangreint dæmi sem stærstu lygi hins vestræna heims, frá upphafi og við vorum sammála. Turnarnir féllu ekki vegna þess að flugvélar klesstu á þá eins og myndi gerast í Hollywood, þeir voru jafnaðir við jörðu með kerfislegum sprengingum og verkfræðiviti af ríkisstjórn BNA. Búúúú & blah!
Þetta er svo subbuleg lygi að maður móðgast við að leyniþjónusta BNA hafi í raun gefið grænt ljós, en það er lítið við að hafast í þá daga og engir óvinir sem hægt var að njósna um. Við gerum því ráð fyrir að skörpustu hnífarnir hafi farið annað þar sem einn með vísitölu á við for var æðstur og frændi sennilegast þar á eftir. Nú erum við öll, okkur öllum að óvörum, komin í veseniskví þar sem ekkert minna dugar en mergurinn úr okkur og eigum í óskilgreindu stríði við óskilgreindan aðila sem gæti hugsanlega verið eins og arabi í útliti en líka hvítur, millistéttarmaður sem þolir ekki araba. Úff og jíbbífokking halefríkinlúja. 
Við fréttum af leikþættinum sem átti eftir að eiga sér stað 11/9’01 þann 2/5’01 frá manni sem heitir Gregor.

Tuesday, August 7, 2012

Frændi/叔叔


Það er margra að sigla inn undir fölsku flaggi og ætla sér svo að uppskera herfangið, sem óafvitandi í einfeldni hefur komið sér í varnarlausa stöðu. Þetta er ekkert erfitt að gera. Hins vegar getur verið erfitt að vara fólk við þeim háska sem að þeim steðjar af þeim mörgu sem eru svo heillandi, skemmtilegir og næs.
Huang Nubo (HN) er örugglega heillandi, skemmtilegur og næs. Það sem sumir virðast ekki átta sig á, eða vilja ekki átta sig á væri e.t.v. skýrara, er að HN er lítið annað en Trójuhestur og eins glæsilegur og sá sigur Grikkja var í Trójumannasögu, þá viljum við fyrir alla muni ekki vera í sporum Trójumanna (Trójuverjar væri betra) í þeirri ágætu frásögn af hersnilli Grikkja. Eftir 10 ára umsátur Grikkja þáðu Tójuverjar (from now on) sigurgjöf á stærð við Asparfellið sem reyndist full af meiriháttar grískum hermönnum sem þustu til og opnuðu hliðið af Trójuborg sem féll í hendur Grikkja. Ljómandi sniðugt hjá Grikkjum. Nú hins vegar er verið að bjóða Íslendingum fúlgu fé fyrir engin séð verðmæti sem ekki er að finna t.d. á suðurnesjum. Kárahnjúkar eru gott dæmi um þessi óséðu verðmæti. Þar græddi frændi heilmikið og sá ríkisstjórn Íslands til þess og af hverju þá, mættu einstaklingar ekki selja land sitt til útlendinga? Á öðrum staðnum má umturna landinum til frambúðar eingöngu í þágu atvinnusköpunar; á hinum staðnum er bágt fyrir að ætla að búa til Kínverskraríkisbubbanýlendu á hálendi Íslands þar sem hægt verður að spila golf. Ji-hibbí. Nú kann ég ekki deilihlutföllin við Ísland á Hálslóni og Grímsstöðum á fjöllum en mættu Kínverskir auðjöfrar kaupa ónýtta landið sem er undir Hálslóni? Við erum komin út fyrir efnið því miður.
HN ætlar sér stóra hluti og er það aðdáunarvert. Það sem háir honum er að hann er að fara bauka með sína framtakssemi heima hjá mér. Það er ekki til umræðu að 3% af Íslandi verði selt einum manni sem er heillandi, skemmtilegur og næs. Sama hversu heillandi, skemmtilegur og næs hann kann að virðast sem sigurgjöf og fúlga fjár því það býr eitthvað að baki. Norður Íshafsleiðin kemur þar fyrst upp í kollinn og vissulega liggja Grímsstaðir á fjöllum alls ekki að sjó en þeir eru fyrir norðan og alls ekki langt frá kjörnum stað til umskipunar og olíutöku skipa frá s.k. Alþýðulýðveldinu Kína. Gæti verið mjög sniðugt þar sem skýrsla frá Utanríkisráðuneytinu greinir fyrirsjáanlega stóraukningu siglinga á innri norðaustursiglingaleiðinni út af Síberíu. Við hins vegar gætum grætt peningas ef Ytri siglingaleiðin um Norður-Íshafið, milli Norður-Atlantshafs og Kyrrahafs, myndi opnast og segir í áðurnefndri skýrslu að ísstyrkt skip fari í raun létt með þetta nú þegar. Við getum í raun ekki beðið, ekki frekar en HN sem veit hvað hann syngur blessaður. Kína er víst við Kyrrahafið og sárafáa langar til að spila golf í byl. Ergo: það býr hugsanlega eitthvað annað að baki hjá hinum ljómandi heillandi, skemmtilega og peninganæs HN? Bara hugsanlega þó. 
Get'yer heed oot of yer arse folks. Please.