Tuesday, August 7, 2012

Frændi/叔叔


Það er margra að sigla inn undir fölsku flaggi og ætla sér svo að uppskera herfangið, sem óafvitandi í einfeldni hefur komið sér í varnarlausa stöðu. Þetta er ekkert erfitt að gera. Hins vegar getur verið erfitt að vara fólk við þeim háska sem að þeim steðjar af þeim mörgu sem eru svo heillandi, skemmtilegir og næs.
Huang Nubo (HN) er örugglega heillandi, skemmtilegur og næs. Það sem sumir virðast ekki átta sig á, eða vilja ekki átta sig á væri e.t.v. skýrara, er að HN er lítið annað en Trójuhestur og eins glæsilegur og sá sigur Grikkja var í Trójumannasögu, þá viljum við fyrir alla muni ekki vera í sporum Trójumanna (Trójuverjar væri betra) í þeirri ágætu frásögn af hersnilli Grikkja. Eftir 10 ára umsátur Grikkja þáðu Tójuverjar (from now on) sigurgjöf á stærð við Asparfellið sem reyndist full af meiriháttar grískum hermönnum sem þustu til og opnuðu hliðið af Trójuborg sem féll í hendur Grikkja. Ljómandi sniðugt hjá Grikkjum. Nú hins vegar er verið að bjóða Íslendingum fúlgu fé fyrir engin séð verðmæti sem ekki er að finna t.d. á suðurnesjum. Kárahnjúkar eru gott dæmi um þessi óséðu verðmæti. Þar græddi frændi heilmikið og sá ríkisstjórn Íslands til þess og af hverju þá, mættu einstaklingar ekki selja land sitt til útlendinga? Á öðrum staðnum má umturna landinum til frambúðar eingöngu í þágu atvinnusköpunar; á hinum staðnum er bágt fyrir að ætla að búa til Kínverskraríkisbubbanýlendu á hálendi Íslands þar sem hægt verður að spila golf. Ji-hibbí. Nú kann ég ekki deilihlutföllin við Ísland á Hálslóni og Grímsstöðum á fjöllum en mættu Kínverskir auðjöfrar kaupa ónýtta landið sem er undir Hálslóni? Við erum komin út fyrir efnið því miður.
HN ætlar sér stóra hluti og er það aðdáunarvert. Það sem háir honum er að hann er að fara bauka með sína framtakssemi heima hjá mér. Það er ekki til umræðu að 3% af Íslandi verði selt einum manni sem er heillandi, skemmtilegur og næs. Sama hversu heillandi, skemmtilegur og næs hann kann að virðast sem sigurgjöf og fúlga fjár því það býr eitthvað að baki. Norður Íshafsleiðin kemur þar fyrst upp í kollinn og vissulega liggja Grímsstaðir á fjöllum alls ekki að sjó en þeir eru fyrir norðan og alls ekki langt frá kjörnum stað til umskipunar og olíutöku skipa frá s.k. Alþýðulýðveldinu Kína. Gæti verið mjög sniðugt þar sem skýrsla frá Utanríkisráðuneytinu greinir fyrirsjáanlega stóraukningu siglinga á innri norðaustursiglingaleiðinni út af Síberíu. Við hins vegar gætum grætt peningas ef Ytri siglingaleiðin um Norður-Íshafið, milli Norður-Atlantshafs og Kyrrahafs, myndi opnast og segir í áðurnefndri skýrslu að ísstyrkt skip fari í raun létt með þetta nú þegar. Við getum í raun ekki beðið, ekki frekar en HN sem veit hvað hann syngur blessaður. Kína er víst við Kyrrahafið og sárafáa langar til að spila golf í byl. Ergo: það býr hugsanlega eitthvað annað að baki hjá hinum ljómandi heillandi, skemmtilega og peninganæs HN? Bara hugsanlega þó. 
Get'yer heed oot of yer arse folks. Please.

No comments:

Post a Comment