Sunday, September 23, 2012

Lágt óreiðustig.


Jæja gott fólk. Það er víst allt vitlaust í muslim country vegna myndbands sem er kallað Innocence of Muslims, að við höldum. Nú höfum við horft á trailerinn að þessum uppþotum og erum hjartanlega sammála muslims og þeim sem trúa á Mohammed að þetta er hrein aðför. Hver er tilgangurinn spyr muslims sig en meira svona: hvaða fokkings diss er þetta og hvern á ég að berja fyrir það? Einhver dissaði muslims og anybody close is going to pay for it. Járnbrautarlestarráðherra Pakistan hefur heitið 12 milljónum króna þeim er líflætur þann sem bjó til myndbandið. Sounds fair and a well thought over plan. Fullt af fólki látið og við erum sammála um að spurningin sé: til hvers? Spurningin að okkar mati er þó ekki til hvers er verið að mótmæla heldur til hvers var myndbandið búið til?  
Nú horfðum við e.t.v. á myndina tekna úr samhengi en þeir þættir sem við sáum voru óvægnir á Mohammed blessaðan. Við veltum fyrir okkur hvort það mætti ekki gera grín að öllum og öllu og jú, það mátti okkar vegna. En af hverju að búa til svona mynd? Sprengja sem er gerð á ódýran hátt og með metnaðarfullum leikurum, hver greiddi fyrir verkið og ef ekkert var greitt, hvert var verkefnið? Ef verkefnið var ekkert af hverju myndaðist það? Það þarf vissulega ekki að hafa verið tilgangur fyrir öllu, í mínum huga, sem er, en þetta myndband hefur mjög lágt óreiðustig kvikmyndalega séð.
Þráðurinn er einfaldlega: Skítið á ykkur múslimar á allan mögulegan og ómögulegan hátt. Muslim er vont, gyðingar eru góðir.
En kids, í eldfimu ástandi sýnist okkur að Mossad hafi ákveðið að tendra í, útaf Íran og svona kjarnorkuvopna og svona... og svo styttist í kosningar í BNA, þannig að þá má man. Dularfullt eins og Alpadrápin svo kölluð um daginn. Spennandi.

No comments:

Post a Comment