Tuesday, September 18, 2007

Big Jim

Sæl veriði, þegar ég var lítill átti ég action karl sem var kallaður "Big Jim". Hann var um þrjátíu sentimetrar á hæð og var svolítið massaður. Hann var með liðamót eins og hver önnur manneskja nema hvað að hann gat ekki hreyft ökklann, sem var svolítið sérstakt. Af hverju hann gat það ekki, veit ég ekki! Hann var allur úr harðplasti nema handleggirnir á honum þeir voru úr gúmmí sem hægt var að beygja og ef maður hætti sér í það, stækkuðu upphandleggsvöðvarnir á honum og varð greinilegt að hann var sterkur. Hann gat einnig bara litið til beggja hliða en ekki upp og niður og þótt undarlegt megi virðast, truflaði það mig aldrei neitt! Big Jim var einum hæfileika gæddur, sem þótti merkilegt, hann var með hnapp á bakinu sem var eins og flatarmálið á fingurgóm, þumalfingurs fullvaxta karlmanns, að stærð. Ef maður vildi og þorði gat maður þrýst á þennan hnapp og þá sveiflaðist hægri handleggurinn á honum fram... hann gat þá sem sagt kýlt. Hann var líka alltaf að lenda í einhverjum óskunda og þurfti þá gjarnan að berja frá sér þegar "vondu" mennirnir voru að óþekktast eitthvað. Ég var svo þróaður í mínum leik að meira að segja átti ég innigalla fyrir manninn, það voru þá náttföt og lenti hann í mörgum ævintýrunum á náttfötunum einum saman. Ég þurfti að hætta að leika mér með hann þegar ég fór í gagnfræðaskóla, ekki af því ég vildi það heldur af því það var barnalegt! Stundum, langar mig nú að finna annan svona Big Jim og sína Svínunum hvar Davíð keypti ölið, því það virðist ekki gerast nema í hugarheimi barna. Kv. KLT

No comments:

Post a Comment