"The only thing necessary for the triumph of evil, is for good men to do nothing." (Edmund Burke 1729-1797)
Friday, November 30, 2007
Kennari fangelsaður í Súdan vegna nafngiftar.
Thursday, November 29, 2007
Óskýr skil prímata og manna/ í stúkusæti fyrir heimsendi/ Vertu velkominn Pétur.
“Mike Huckabee, apparently unaware that human beings are primates, responded to a question about evolution by saying, “If anybody wants to believe that they are the descendants of a primate, they are certainly welcome to do it.”” At a recent appearance at the Prestonwood Baptist Church near Dallas , “he told audiences that Christians are sitting in the pole position of the race to Armageddon “If you´re with Jesus Christ, we know how it turns out in the final moment,” he said. “I’ve read the last chapter in the book, and we end up winning. Winning?”” (Matt Taibbi, Rolling stone, National Affairs).
Sérstakur strákur hann Mike Huckabee, en þetta er víst ekkert óalgengt. Mike Huckabee vill fá að bjóða sig fram til forseta BNA fyrir hönd Republikanaflokksins. Hann keppir við Rudy Giuliani, Mitt Romney, Fred Thompson og John McCain.
Ég veit ekki hvað skal segja um Mike. Ég skil ekki hvernig það er hægt að vera svona afturábak. Kaþólska Kirkjublaðið var að koma inn um lúguna og er þess getið þar að kaþólikkar í Reykjavík hafa fengið nýjan biskup frá og með 30. október á þessu ári og var tilnefndur Pétur Bürcher, aðstoðarbiskup biskupsdæmisins í Lausanne-Genf og Fribourg í Sviss, til að gegna embætti Reykjavíkurbiskups.
Nú datt mér í hug að Pétri hefði orðið á í messunni og verið lækkaður í tign, eða metorði. „Að eigin sögn kom tilnefningin í embætti Reykjavíkurbiskups honum algjörlega á óvart því hann hafði aldrei til Íslands komið. En af tryggð við hirðisembættið hafi hann hins vegar gefið samþykki sitt við þessari ráðstöfun.”(Sr. Jürgen Jamin, Kaþólska Kirkjublaðið, „Velkominn til Íslands Pétur biskup”). Þann 15. des.’07 mun Anders Arborelius Stokkhólmsbiskup og formaður biskuparáðs Norðurlanda setja Pétur biskup í embætti við hátíðlega athöfn í Dómkirkju Krist konungs í Landakoti.
Wednesday, November 28, 2007
Almenn brot.
Stundum kemur það fyrir að maður veit að e-ð er, en þetta sem er, er ógreinanlegt. Maður getur heyrt, þefað, snert, bragðað og séð. Allt eru þetta nú brigðul verkfæri ein og sér. Manni gæti hafa heyrst fótatak en það er óljóst hvort um var að ræða fótatak konu eða karls, einnig er hægt að finna eggjaprumpulykt af hverum. Munurinn á steypu og tré er áþreifanlegur en ekki sætt eða súrt, beiskt eða rammt. Sjónin er þó mest metna skynfærið en takmarkað og brigðult á raunveruleikann líkt og hin eins og myndin hér að ofan sýnir (allar línur er beinar og láréttar). Ætli það þurfi ekki ákveðna blöndu af skynfærum til þess að maður sannfærist að e-ð sé. Ætli þegar maður hefur 2 af 5 skynfærum örvuð þá trúi maður að svo sé. Maður heyrir í báli og finnur brunalykt (almenna brotið 2/5). Maður getur einnig séð eggið sem maður ætlar að setja uppí sig og það bragðast eins og egg og til staðfestingar þá kemur eggjaprump e. 20 mín. Slíkt myndi vera almenna brotið 3/5 og hlutföllin 5/5 eru öll skynfæri örvuð.
Trúin á guð almáttugan er slík að engin skynfæri eru örvuð og því engin staðfesting. Þó er til fólk sem veit að guð er til. Maður virðist sjá svarta díla hér til hliðar þó eru þeir ekki til staðar. Er guð almáttugur svartur blettur?
Samkvæmt ofangreindu er trúin á guð almáttugan almenna brotið 0/5. Stytting almennra brota felst í því að láta teljara og nefnara fá eins lágt gildi og hægt er án þess að breyta gildi brotsins. Þau eru stytt með því að finna sameiginlega frumþætti og deila þeim í bæði teljara og nefnara. Tökum t.d. fyrrnefnda brotið 0/5. Það er alger óþarfi að brot hafi gildið 0/5 þegar það getur haft gildið 0 og er léttara að muna.
Guð er allt og allsstaðar er sennilegast sú tilgáta sem styrkustu stoðum stendur en þá er hann allteins ekkert þar sem hann er jafnaður út handan jafntogmerkis þegar brot eru einfölduð. Hann gæti þó verið annarhver fótur á fílnum hér að ofan.
The fall of a president.
The helicopter went straight up and hovered for a moment then swooped down towards the Washington Monument and then angled up into the fog. Richard Nixon was gone." (HST, The Great Shark Hunt, 1979).
Wednesday, November 21, 2007
2 cd.
Á tímum þar sem einkennisþjófnaður er gróðatækifæri þá eru þetta ekki góðar fréttir fyrir þá sem eru skráðir á þessum 2 geisladiskum sem báru upplýsingarnar. Ekki er þó allt breska þýðið á þessum diskum heldur einungis þeir sem hafa átt börn í Bretlandi og þegið barnabætur. Væri einungis um nöfn að ræða þá væri nú engin frétt heldur er einnig útlistað heimilisfang viðkomandi, fæðingardagur, sjúkrasamlagsnr. (social security nr.) og svo upplýsingar um bankareikninga viðkomandi og númer þeirra. Gögnin voru send í óskráðum pósti hjá póstflutningafyrirtækinu TNT.
Paul Gray stjórnarmaður HMRC (HM Revenue og Customs) hefur sagt af sér og er þrýstingur frá stjórnarandstöðunni að fjármálaráðherran geri það líka.
Lögreglunni hefur nú verið nú verið fengið það verkefni að finna tvo geisladiska í London sem voru sendir í pósti 18. október á þessu ári. Skelfing er að grípa um sig hjá fólki sem telur nafn sitt verið komið í gönur.
Nú myndi ég halda að það væri ekkert sem mælti á móti því að senda þessar upplýsingar með rafrænum hætti. Aukin áhersla hefur verið lögð í öryggisferli frá því í september þegar upplýsingar um 15 þúsund einstaklinga glötuðust á svipaðan hátt.
Líkurnar eru 1/25.000.000 á því að verða einn útvaldra af hröppum sem ætla að græða af þessum diskum sérstaklega. Bretar voru alls 60 milljónir á síðasta ári og áður urðu um 12 þúsund Bretar fyrir barðinu á persónustuldi á hverju ári sem er 0,02% af þýðinu. Samkvæmt þessu munu því um 5 þúsund Bretar lenda í vandræðum vegna diskanna tveggja. Líklega mun aðgengi auka glæpatíðni og gera má ráð fyrir tvöföldun sem gera þá um 10 þúsund manns.
Umræðan sem hefur verið í fullu mæli frá því í gær hefur snögglega farið yfir helstu hættur og er þar með nefnt að barnaníðingar gætu notað þessar upplýsingar, til að nálgast fórnarlömb á spjallrásum og almennt á internetinu. Ég sé nú ekki í fljótu bragði hvernig slíkar upplýsingar geta stytt eða auðveldað leiðina að barni og því ekki þörf á meiri árvekni þar. Hins vegar er alveg grafalvarlegt að þetta lendi í höndunum á þrjótum. Gefið er í skyn að með þessum upplýsingum sé hægt að versla á internetinu og þá nota upplýsingarnar sjálfur þannig að maður gangi í hlutverk fórnarlambsins. Einnig er bent á að hægt sé að selja upplýsingarnar þeim sem kunna að fara glæpsamlega með slíkar upplýsingar og eru til í að greiða fyrir aðgengi. Fyrir utan augljósu ástæðuna með fjármálin þá var tilgreint að hægt væri að kaupa farsíma á nafni fórnarlambsins. Í raun voru engin takmörk fyrir því hvað hægt væri að gera með slíkar upplýsingar. Þannig að svona lítur þetta út fyrir mér: Það er mjög ólíklegt að upp komi vandræði hafi maður yfir höfuð verið skráður á þessum geisladiskum og muni svo ólíklega henda að maður verði fyrir barðinu á persónustuldi þá er engin leið að gera ráðstafanir því enginn veit hvaðan hættan muni steðja að.
Tuesday, November 20, 2007
Það er hart í þeim.
Eniga meniga allt snýst þetta um peninga.
Mín saga er svo sem ekkert afgerandi eða önnur en svo margir hafa lent í. Við heimilisfólkið ákváðum að sýna dyggð við eitt fyrirtæki með því að hafa gsm síma, heimasíma, internetið og sjónvarp hjá Vodafone og er fólki umbunað með slíkri dyggð með vægum afslætti. Sjónvarpið fengum við í gegnum Digital Ísland. Það voru mistök.
Tengslin á milli Digital Íslands og Vodafone eru mjög óskýr. Maður fær afruglara Digital Íslands á sölustöðum Vodafone. Hins vegar hefur Vodafone ekkert með Digital Ísland að gera þegar kemur að bilunum eða annarri þjónustu. Reyndar hefur enginn neitt að gera með Digital Ísland þegar kemur að bilunum eða þjónustu og er hún því enginn, núll. Þegar við heimilisfólkið stungum afruglaranum í samband fengum við ljómandi fína mynd en það vantaði nokkrar stöðvar sem komu bara alls ekki inn. Okkur fannst það nú ekki tiltökumál þar sem við áður höfðum ekki sjónvarp og í sífelldum vandræðum með loftnetið. Eftir um hálfsmánaðar notkun hurfu allar stöðvarnar. Ekkert fannst þó leitað væri.
Okkur var sagt, þegar við loksins náðum í gegn til Digital Íslands, eftir 45 mín. bið í síma, að þetta væri sennilegast e-ð hjá okkur sem væri vandamálið. Auðvitað var þetta ekkert sem Digital Ísland ætlaði sér að taka á. Okkur var sagt að fá okkur loftnetsmann sem myndi laga þetta því við höfðum ekki nægilega góð skilyrði fyrir móttöku útsendingar. Gott og vel. Við gerðum það ekki því við þekkjum þessa lygatuggu og sögðum upp fyrirbærinu. Daginn eftir voru allar stöðvar komnar inn og líka þær sem við höfðum aldrei náð áður. Enginn loftnetsmaður hafði litið á loftnetið né nokkuð annað gerst. Eina breytan var að Digital Íslandi var sagt upp.
Svo sá húsfrúin auglýsinguna um að hægt væri að sjá sjónvarp í gegnum adsl án nokkurs loftnets. Þetta var akkúrat fyrir okkur. Við athuguðum málið og það sem þurfti að gera var að færa adsl línuna yfir til Símans frá Vodafone og þá væri allt klappað og klárt. Þessi beiðni var færð til Vodafone og svo biðum við þar til við fengjum loks að sjá sjónvarp. Ekki gekk þetta ferli betur en svo að internetið varð óvirkt hjá okkur. Við athuguðum hjá Vodafone sem bað okkur að koma með “routerinn” til sín svo þeir gætu litið á hann og gengið úr skugga um að hann væri í lagi. Ekkert mál. Við erum réttlátt fólk. Í síma var okkur sagt að hægt væri að bíða eftir að litið væri á hann og svo gætum við farið með hann til baka. Þetta var alls ekki raunin. Í móttöku Vodafone tók á móti okkur feitur göltur með grís í þjálfun og vildi allt gera til að sýna hvernig maður fær annað fólk til að éta skít. Hvergi var slegið af stinningunni með að ánægðustu viðskiptavinirnir væru hjá Vodafone. Ég spurði göltinn þá hvort hann ætlaði að skutla “routernum” heim til mín eftir skoðun en slík þjónusta er ekki í boði. Eðlilega þar sem hún er í raun engin. Í stað þess að slá til kauða ákváðum við að segja honum að troða “routernum” þar sem sólin aldrei skín og máttum við athuga með tæknimanninn eftir hádegi. Þegar ég geri það er mér sagt að tæknimaðurinn sé með “routerinn” í höndunum og að þetta hafi verið sett í algeran forgang. Ljómandi. Kannski var þetta allt að hjaðna.
Þegar ég hringdi svo aftur rétt fyrir lokun var mér sagt að tæknimaðurinn væri með “routerinn í höndunum og að málið mitt hefði verið sett í algeran forgang. Hva’ba? Það var verið að biðja mig að éta skít eina ferðina enn.
Kom í ljós, eftir að tæknimaðurinn hafði tekið sér heilan dag í að skoða “routerinn” að það var hreinlega allt í góðu með hann. Ég kom niður eftir og bað um að fá að tala við yfirmann. Hún var víst upptekin en myndi hringja um leið og hún losnaði. Ég útskýrði þá fyrir afgreiðslustúlkunni að skyldi þessi yfirmaður ekki hringja væri ég neyddur til að færa mig yfir til Símans með allt mitt heimili, því þó það væri enginn munur á kúk og skít þá æti maður ekki sama skítinn úr sömu skeið. Ég þóttist vita að ég væri nú ekki stór fiskur en væri e-r merking á bakvið stóru orðin um ánægðustu viðskiptavinina þá gæti hugsanlega e-ð gerst.
Yfirmaðurinn hringir í mig og segir mér að nú gæti hún best trúað að það væri e-ð að línunni hjá okkur og þyrftum við að greiða fyrir lagfæringu á henni ef þörf væri á slíku. Ég ætla að vona að þið sjáið samsvörunina við ofangreint dæmi með Digital Ísland. Við heimilisfólkið búum vel þannig að við fengum til okkar símamann sem útskýrði fyrir okkur að ef síminn hjá okkur virkaði þá ætti internetið að virka líka. Síminn var í góðu standi.
Þegar ég útskýri þetta fyrir Vodafone fólki þá virðist það ekki skilja svona rökstuðning. Á meðan á þessu stendur fáum við hringingar frá Vodafone fólki sem er að fylgja eftir minni eftirfylgni af bilun sem nú er komin svo langt á veg að ótækt er að fara útskýra málið fyrir þjónustulundaðri sál í aukavinnu.
Við heimilisfólkið þáðum boð um að fá mann frá Vodafone til að líta á línurnar hjá okkur á þeim forsendum að hann myndi ekki laga einn einasta vír án okkar samþykkis og vitundar af ótta við að Vodafone myndi reyna koma sér undan í skjóli tæknimáls og vanþekkingar af okkar hálfu. Ekki vanmeta þessi skrímsli.
Kom í ljós að ekkert var að hjá okkur og hringdi rafvirkinn eitt símtal og hafði þá línan verið sett í rangt sæti. Það var allt og sumt.
Þegar hingað er komið er vika liðin frá því að internetsambandið rofnaði og þegar á ofangreindu stóð var okkur sagt að við skyldum ræða bætur fyrir ómakið þegar búið væri að finna út hvað væri að. Þetta hljómaði nú eins og fagmannlegt viðhorf en því miður var eftirfylgnin á þessu loforði dræm. Þegar ég svo loks leitaði eftir bótum og þá ekki endilega fjárhagslegum heldur eingöngu viðurkenningu á ómaki sem heimilið hafði orðið fyrir þá kom það uppúr dúrnum að því miður væri ekki um neitt slíkt að ræða en Vodafone gæti boðið okkur að draga frá mánaðargjaldinu af internetinu þá viku sem við ekki höfðum aðengi að því. Sem sagt, ómakið var ekki viðurkennt en í boði var að greiða ekki fyrir það sem við ekki fengum. Okkur var þá boðið að éta ekki skít. Ljómandi fínt, þar sem við vorum einmitt hætt því.
(Myndin að ofan er fengin að láni úr Rolling Stone)Monday, November 12, 2007
Thursday, November 8, 2007
Stop Press!
Lyrical terrorist. STOP. Arrested on suspicion of carrying records that might be used for terrorism. MESSAGE ENDS.
Hvabaha!?!
Fyrirgefðu.
Vegna kvörtunar sem lögð var fram 14. okt. síðastliðinn, var ég boðaður á fund til húsfélagsins í Asparfelli.
Ég sé mér því miður ekki fært að mæta þar sem ég þarf að fara í vinnu, sem er frá 17.00 -21.00. Rita ég því þetta bréf sem er í senn afsökunarbeiðni og réttlæting á atburði helgarinnar.
Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég bý í sambýli með öðru fólki, og er þar með ekki hafinn yfir reglur og bönn sem gilda í blokkinni.
Ég og stúlkan sem ég er með höfum verið saman í fjögur ár á laugardaginn var og ákváðum við að halda upp á það með pompi og pragt. Við buðum vinum og kunningjum að samgleðjast okkur og mættu þeir til okkar um 21.00. Við Sigurjón, sem er einnig leigjandi í Asparfelli 8 1L, tókum höndum saman og buðum fólki upp á veitingar og aðstöðu til að sitja og njóta þeirra. Skal það tekið fram að hvorugur hinna leigjendanna voru heima og gerði ég þá ráð fyrir að truflunin næði ekki út fyrir þá íbúð, þ.e. 1L. Fór nú samt svo að kvartað var í formann Húsfélagsins, Ólaf A. Jónsson, og kom hann yfir. Voru lætin satt að segja töluverð en samkvæmið hafði farið úr böndunum og ég ekki gert mér grein fyrir því, fyrr en kvörtunin kom. Hafði ég haldið að hljóð ætti að vera komið á fyrir kl: 23.00, en klukkan var um 22.30 er Ólafur kom. Séu það mín mistök, að það eigi að vera komið á hljóð fyrir þann tíma, biðst ég afsökunar á því.
Einn félaga minna, fór mannavillt á mér og Ólafi og kom heldur en ekki óþægilega að honum. Ekki það að ég og Ólafur séum líkir heldur vorum við í töluvert svipuðum buxum og félagi minn var ekki í aðstöðu til að sjá framan í Ólaf, þannig að hrekkurinn var ekki ætlaður Ólafi heldur mér. Ég biðst innilegrar afsökunar á þessum ægilegu mistökum fyrir hönd félaga míns og mín og vona að Ólafur sjái sér fært um að taka við þessari afsökunarbeiðni.
Var Ólafur í töluverðu uppnámi og bað mig um, á laugardeginum , að rýma herbergið daginn eftir þ.e. á sunnudeginum. Sagði Ólafur að þetta væri ekki fyrsta skipti sem kvartað væri undan þessari íbúð, en hef ég það mér til málsbóta að það hefur aldrei verið kvartað undan mér, eða á neinn hátt annan verið vandræði af mínum völdum, á meðan ég hef búið í þessu herbergi. Skal ég ekki segja til um hvort kvartað hefi verið undan hinum leigjendum herbergjanna. Þar sem ég hef enga vitneskju um það. Ég sá mér ekki fært að rýma herbergið og er því enn íbúi í Asparfelli. Tel ég Ólaf ekki hafa rétt á því, með fullri virðingu fyrir honum sem formanni húsfélagsins, að reka mig út samkvæmt IV lið 17.grein í reglum húsfélagsins, þar sem stendur orðrétt:
„Geri eigandi eða annar íbúi sig sekan um gróf eða ítrekuð brot á skyldum sínum gagnvart húsfélaginu eða einhverjum félagsmanni þess getur húsfélagið eftir a.m.k. eina skriflega aðvörun krafist að hann flytji úr íbúð sinni með eins mánaðar fyrirvara.”
Vona ég að þið sjáið minn hlut í málinu. Geri ég mér grein fyrir broti mínu og hef ekkert að leggja fyrir mig nema afsökun mína og loforð mitt um að slíkt hátterni og slík hávaðamengun komi ekki fyrir aftur af minni hálfu né mínum gestum.
Verð ég kominn heim um 21.30 í kvöld og þætti mér vænt um að fá að vita lyktir á þessu máli svo ég geti verið öruggur um að hafa húsakynni að kveldi dags.
Þakka ykkur fyrir!
------------------------------
Wednesday, November 7, 2007
Gráir draumar.
36 ára karlmaður lokkaði til sín 13 ára stelpu í gegnum internetið. Hann fékk hana til að koma til sín á Kings Cross lestarstöðina, fór með hana heim til sín, hellti hana fulla og reið henni svo. Þessi maður hefur verið settur í steininn og mun sitja af sér 6 ára dóm fyrir verknaðinn. Þá verður hún 19 ára. Ekki finnst mér þetta þungur dómur.
Til að bregðast við slíkum árásum er tilkomið fyrirtæki í Bretlandi sem fer í gegnum harða diskinn hjá fólki sem grunar að börnum sínum stafi hætta af fólki sem leggst á börn. Bretar eru sérstaklega ungdómsdýrkandi fólk, mikið af fólki sem ræður svo ekki við sig og gengur á vit draumóra.
Á svipuðum nótum hefur internet leikurinn Second Life orðið grundvöllur fyrir draumórum margs fólks sem langar að leita á börn en hefur sig ekki í það. Þegar ég ræddi þetta mál við lögfræðinginn minn sagði hann að sér fyndist enginn munur á því að lemja/skjóta fólk til dauða og að ríða 12 ára stelpu “virtually”, við getum ekki farið að handtaka tölvuleikjapersónur, Duke Nukem, Agent 47 eða Sam Fisher. Ættum við þá að handtaka leikara sem hafa leikið slíkan atburð, Kevin Bacon t.d.?
Þetta er ekki rétt, en er þetta rangt? Þetta er sérstaklega grátt svæði. Til huggunnar þykist ég vita það að litlu telpurnar sem verið er að leita á í þessum blessaða leik eru sennilegast ekki litlar telpur, heldur eldra fólk sem er að upplifa falda draumóra um að vera lítil telpa. Eða karlar með kaktus í rassgatinu eins og lögfræðingnum mínum datt í hug.