Tuesday, November 6, 2007

Óður til Land Rover.

Það er mikið frelsi sem fylgir því að vera uppá hálendi Íslands og kíkja eftir fugli í jólamatinn. Maður er einn á móti náttúruöflunum sem geta verið svo sérstaklega óvægin. Góður útbúnaður, eða réttur öllu heldur, getur skipt sköpum milli lífs og dauða. Góður bíll er nauðsynlegur en ekki nóg. Einnig þarf maður að kunna að keyra. Svipuðu máli er farið með GPS staðsetningartækin. Mítan er sú að margir gangi með gps tæki en kunni svo ekki að nota þau þegar á hólminn er komið. Einnig geta þau klárað rafhlöðurnar þegar mest liggur við. Þetta eru enginn þróuð vísindi svo sem en vert að athuga ástandið á tækinu líkt og að athuga eldsneytið á bílnum. Þetta tvennt, bíll og staðsetningartæki, held ég að sé nauðsynlegt fyrir hálendisferðir. Ég hugsa að ég útbúi svo bara tæmandi lista.

No comments:

Post a Comment