Friday, February 3, 2012

Skíthæll

Ég var að tala við skíthæl í gær. Hress og skemmtilegur eldri maður og var hann að tala fyrir hönd vanvita. Við tókumst á um misjöfn sjónarmið á aðstöðunni sem upp væri komin og bar okkur sjaldnast saman en þó á tímum sammæltumst við um ákveðna fasta þætti s.s. „vanvitinn er ekki vitur“ og „aðstæðurnar sem vanvitinn hefur komið sér í eru mjög slæmar, fyrir fleiri en hann.“ Nújá, allt má þetta vera gott og blessað þó svo nauðsynlegustu hlutirnir hafi ekki verið skilgreindir. Á einum tímapunkti var rætt um hvort aflið sem ég ynni fyrir væri mannlegt og að ég hefði sagt að það væri það ekki. Stofnunin sem ég vinn hjá er ekki mannleg stofnun í svo mörgum orðum. Hér greindi okkur stórlega á með skilgreiningar. Hann taldi að það væri gríðarlega eftirsóknavert fyrir stofnun að verða mannleg og sennilegast átti hann við mjúk og skilningsrík, en miðað við það sem var fyrir augunum á mér á þessum fundi og var óneitanlega mannlegt, því ósköp fá önnur dýr verða skíthælar í sínum lífsferli, var mannlegt ekkert til að sækjast eftir. Eftir mikið fát, fum og fuður þá sneiddi ein tillagan frá skíthælnum svo nálægt hagsmunum þeirra er ég talaði fyrir að við gátum fundið sáttarflöt, eða næstum því. Því eins og skíthælar eru þá þýðir ekkert að semja við þá. Það sem verður að gerast er að skíthællinn verður að halda að hann hafi náð samningum og gengur frá borði sigri hrósandi, sem hann gerir jafnvel eftir ósigur með vanvitan sem er klár í hvað sem honum er sagt að gera næst. Það sem hann sagði var samþykkt með smávægilegum breytingum. 
Sjáum hvað gerist.

No comments:

Post a Comment