Tuesday, February 14, 2012

Tönnin

Það flaug mér í hug um daginn hvort manneskjur gætu áskapað sér tourette heilkennið. Tourette heilkenni er taugafræðileg og arfbundin röskun sem enn er ekki vitað um orsök. Röskunin einkennist af hreyfikækjum og hljóðkækjum. Af vef Tourette samtakanna má sjá neðangreint:
Tourette-heilkennið er arfbundið og er líffræðilegt ástand. Það einkennist af langvarandi hreyfikækjum eða kippum og hljóðkækjum og veldur oft félagslegum vanda.
•Tourette kemur venjulega fyrst fram í bernsku og alvarleiki þess er breytilegur eftir einstaklingum og aldri þeirra.
•Tourette fylgja oft aðrar raskanir, svo sem þráhyggja-árátta og athyglisbrestur með eða án ofvirkni.
•Tourette er að finna hjá einu af hverjum hundrað skólabörnum.
•Einkenni Tourette eru oft misgreind. Þau eru m.a. talin vera af sálrænum toga, stafa af lélegu uppeldi eða skilnaði foreldra. Fyrir kemur að líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi er kennt um einkennin og haft samband við barnaverndar¬yfirvöld þar um. 
•Kennarar og meðferðaraðilar álykta stundum að barn með Tourette einkenni sé alvarlega tilfinningatruflað eða athyglissjúkt fremur en að það þjáist af sjúkdómi eða röskun.

Segjum svo að viðfangið verði fyrir stanslausum barsmíðum til að hafa eitthvað að til að leggja rökin á. 15 sinnum á dag í 4 ár er viðfangið lamið með priki til þess að athuga hvort áskapað tourette sé mögulegt. Á fyrsta degi á 5. ári, eftir 21.900 barsmíðar (eða réttara sagt 21.915, þar sem það er hlaupaár) er mögulegt að viðfangið hrópi upp yfir sig á þeim tíma dagsins sem barsmíðarnar voru viðhafðar án þess að raunverulegar barsmíðar eigi sér stað. Þegar líður frá síðasta atviki og slokknun myndast eftir nokkrar vikur, mun viðfangið eftir sem áður bregðast við samkvæmt þeim fyrri atvikum (21.915 skipti) sem glöggvun A átti sér stað (maður, prik). Glöggvun A gæti þó allt eins verið gallabuxur og ég á þrennar. 
Mynd 1.
Þetta gæti því hugsanlega leitt til þess að þegar fólk sem hefur orðið fyrir barsmíðum eða öðru áreiti af hvaða toga sem er í nægilega miklu magni eða tíðni og tengslanám myndast, s.k. skilyrt viðbragð, að þegar fólk sér gallabuxur kemur varnarviðbragðið í ljós sem einkennist af hreyfikækjum og hljóðkækjum.
Tönnin myndi vera skv. Mynd 1. the third canine (cuspid), hægra megin of the upper teeth á adult viðfangi eða þessi nr. 3. 

No comments:

Post a Comment