Wednesday, April 11, 2012

140. löggjafarþing 2011-2012


Það eru spennandi tímar á Alþingi Íslendinga. Þingskjal 1188-750. mál á 140. löggjafarþingi 2011 til 2012 er frumvarp sem lýtur að verslun með áfengi og tóbak og breytingum á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011 með síðari breytingum þegar tóbaki var skeytt við þau lög. Í 2. gr. þessa frumvarps er fjallað um breytingu og viðbót við 11. gr. ofangreindra laga þar sem 11. gr. mun nú vera með fyrirsögnina Vöruval áfengis og við bætist 11. gr. a. sem fjallar um tóbak og vöruval þess. Í þingskjali nr. 1188, 2. gr. er lögð til breyting á 11. gr. laga nr. 86/2011 og í 11. gr. a. er lagt til að ÁTVR sé „heimilt að hafna vörum sem innihalda gildishlaðnar eða ómálefnalegar upplýsingar eða gefa til kynna að tóbak auki líkamlega, andlega, félagslega eða kynferðislega getu, særa blygðunarkennd eða brjóta á annan hátt í bága við almennt velsæmi, m.a. með skírskotun til ofbeldis, trúar, ólöglegra fíkniefna, stjórnmálaskoðana, mismununar og refsiverða háttsemi. ÁTVR er s.s. heimilt að hafna vörum af ýmsum, oft réttmætum, ástæðum. Reglurnar sem ráðherra setur í reglugerð skulu þó „miða að því að tryggja vöruúrval með hliðsjón af eftirspurn kaupenda, jafnframt því að tryggja framleiðendum og birgjum tóbaks möguleika á því að koma vörum í sölu á íslenska markaðnum.“ Þetta má teljast vera hörkuspenna því flutningsmenn þessa frumvarps telja „mikilvægt að slíkt ákvæði sé fært í lög enda mikil ásókn í að selja unglingum tóbak og tóbaksvörur með áróðri eða í dulargervi sælgætis eða heilsvöru.“ Til þessa hefur þetta eingöngu átt við um áfengi en nú má ekki selja nammisígarettur, né sígarettunammi og rightly so.
Eygló Harðardóttir var svo með áhugaverða fyrirspurn um óhreyfða innlánsreikninga í Þingskjali 1193 – 477. máli. Samkvæmt svari frá Fjármálaeftirlitinu og tölum dagsettum 20. mars sl., er um að ræða 100.084 reikninga sem hafa staðið óhreyfðir í 15 ár eða lengur og eru samtals 1.530.245.953 kr. á nefndum reikningum. Helvíti eru margir með pening sem þeir eru hættir að nota. Kröfur fyrnast vegna innlána eða verðmæta sem lögð hafa verið inn hjá fjármálafyrirtæki á 20 árum frá þeim degi er verðmætin voru lögð inn. Allir að kíkja í vasana.

No comments:

Post a Comment