Komið sæl. Ég var að ræða við strákana og okkur þykir komið gott af allskyns trúarlegum ankannalegheitum sem þvælast fyrir okkur og halda okkur niðri í svartasta myrkri vegna ótta og skelfingar um að vera hugsanlega ein, left to our own devices og þurft að taka afleiðingum gjörða okkar og þannig bera ábyrgð á þeim. Það sem er áhugvert að íhuga er hvar mannkynið væri í þróun, hugsun, athöfnum og gjörðum ef kirkjan hefði aldrei komið til sögunnar. Í fleiri hundruð ár, ef ekki þúsund, hefur kirkjan haldið fólkinu niðri með því að sýnast vera á bakvið eitthvað sem er ekki til staðar. Á tímabili fannst kirkjunni nauðsynlegt að stjórna með ægivaldi til að halda sauðsvörtum almúganum í skefjum með því að hindra menntun og vísindi og tortíma öllu sem predikaði annað en hún. Mikið væri nú gaman að skoða réttarhöldin yfir Galileo þegar hann taldi sig hafa það fyrir víst að sólin en ekki jörðin væri einskonar miðja sem allt annað snérist um. Hann dró það svo til baka eftir tiltal frá kaþólsku kirkjunni og sór og sárt við lagði að sólin væri ekki miðja sólkerfisins. Hells Angels hafa þá fyrirmyndirnar úr kristni, gerir það þá góða? Þessi réttarhöld, ásamt þúsundum annarra rita er að finna á bókasafni Vatikansins í Róm. Þar, enn í dag, árið 2012, er bókum og ritum haldið frá okkur sem hafa hátt sagnfræðilegt gildi. Þetta hins vegar getur Vatikanið ekki látið af hendi þar sem það kæmi sér afar illa ef það kæmist til allra vitundar að öll stríð sem hafa verið háð með miklum hörmungum og mannvonsku myndu blikna í samanburði við aðgerðir kaþólsku kirkjunnar og nú erum við ekki sérstaklega að tala um presta að nauðga ungum strákum, kaþólskur prestur er karl en ekki kirkja. Þannig að við leggjum til að við finnum eitthvað nytsamlegra að gera við allar þessar kirkjur en að horfa í gaupnir sér við hin ýmsustu guðstækifæri. Svínabú springs to mind.
No comments:
Post a Comment