Wednesday, May 23, 2012

Málþóf.


Sumarið er endanlega komið. Í dag var sumar í Rvk. og reyndar um allt land að mér sýndist. Í Rvk. var sólin með talsverða viðveru og gustur lék um í hviðum en það var hlýtt þegar ekki næddi í gegnum mann. Ég fylgdist grannt með málþófi á Alþingi Íslendinga og vaskri vörn Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna berjast á móti þingsályktunartillögu (636. mál) um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga. Nú jæja. Hreyfingin ákvað að nefna í framhjáhlaupi að þau ætluðu, en ætla ekki lengur, að verja ríkisstjórnina falli. Eitthvað sem Framsóknarflokkurinn var löngu búinn að gera, að ætla en ætla ekki lengur. Það eru allsstaðar svíndýr.
Þegar rökin falla á dauf eyru eða að rökin séu ekki til staðar, fer sumt fólk að sýna óvitahegðun vegna þess að það er verið að óska eftir að eitthvað verði gert sem skarast við hagsmuni þess með barnalegu hegðunina. Þá þverr rök og annaðhvort ofbeldi eða önnur óviðeigandi hegðun tekur yfirhöndina. Á Alþingi Íslendinga getur þetta stafað af lýðræðislegu ofbeldi sem stjórnarandstaðan telur sig verða fyrir reglulega og blæs til sóknar með ræðulistina að vopni. Sumir hefðu mátt undirbúa sig betur, aðrir voru góðir með kaldhæðnina en flestir hefðu ekki átt að koma fram fyrir alþjóð og bjóða uppá leikþátt sem ekki væri skemmtilegur heldur með það að markmiði að vera langur. 
Málþóf, við mælum með þessu.

No comments:

Post a Comment