Sunday, December 2, 2012
Dimmur staður.
Svo set ég bara öxlina í fast, þrýsti í gegn og hinu megin er ljós í fjarska. Þá er ekkert eftir nema komast þangað.
Tuesday, November 27, 2012
Looking the part.
Cyril Smith ráðherra
fyrir Liberal Democrats í bresku ríkisstjórninni fyrir langalöngu nauðgaði börnum á
sjöunda áratugnum og lést fyrir tveimur árum, rétt á undan Jimmy Saville.
Þeirra beggja var sárt saknað á sínum tíma vegna missis en í dag vegna hefndar,
gott legacy. Nick Clegg formaður Liberal Democrats í dag og hálfgerður framsóknarleiksoppur hélt hjartnæma ræðu við útför hr. Smith og þarf nú að svara fyrir það. Framkvæmdastjóri BBC, George Entwistle sagði af sér vegna þess að fréttaskýringaþátturinn
Newsnight ásakaði fyrrverandi þingmann um að hafa káfað á börnum sem hann gerði ekki. Leiðinlegt,
en nú er hann fundinn þingmaðurinn sem átti að hafa og því óskar áðurnefndur Hr. Entwistle að fá fríðindabættari starfslokasamning (sem hljóðar nú uppá GBP 450þús.). BBC hafði reyndar farið af stað með fréttir að ITV fréttamanni hefði orðið á í messunni en það hljóðnaði fljótt. Jimmy Saville dugði ekki til en þegar maður var ranglega ásakaður um glæpinn sem Jimmy karlinn framdi þurfti að segja af sér. Svo reynist barnaníðingsþingmaðurinn hafa verið ráðherra og ásakanir kæfðar snöggt og örugglega á þeim tíma er brotin áttu sér stað. Sama á við um fyrrnefndan Jimmy. Ég mæli endilega með að
fólk skoði myndir af tveimur ofangreindum. Gjörið svo vel:
Afsláttur.
Fallega lágskýjað
og grátt þegar sólin fer að skína.
30 kr. afsláttur á
hangikjötssamloku með engu hangikjöti.
Rekst svo á
skilti sem á stendur: „Great minds discuss ideas; average minds discuss events;
small minds discuss people“.
Ég veit ekki... mér
sýnist vera að draga fyrir aftur.
Monday, November 12, 2012
StóriÉg Vakti.
Gott
kvöld. Dauðþreyttur angi hérna megin sem hef þurft að taka á honum stóra mínum
og vakað allar lifandi stundir til að geta gert það sem mér hefur borið að
gera. Gaman. Ég tapaði 500kr. á því að veðja á móti vilja mínum, aldrei þótt
gáfulegt svo sem en ég gat þá glaðst í báðar áttir. Ég var skíthræddur að Mitt
minn myndi verða næsti forseti BNA. Skítskíthræddur.
Tuesday, October 23, 2012
Kreppan.
Nú heyrum við því
fleygt fram að Ísland sé á leið út úr kreppunni. Gott og vel og dreymi fallega.
Einnig heyrist sagt og það stundum í fréttum eða s.k. fréttatengdu efni að
önnur kreppa vofi yfir. Ísland á leið út úr kreppunni og önnur kreppa vofir
yfir. Þessar tvær staðhæfingar hér að ofan eru rangar. Þar sem í raun er Ísland
í uppsveiflu frá höggi kreppunnar sem hófst um mitt ár 2007 og stendur enn yfir
þannig að ekki er rétt að tala um að önnur kreppa vofi yfir þar sem þetta er
sama kreppan. Það tekur hins vegar afar langan tíma fyrir samfélög að falla á
hnén þar sem reisnin er töluverð og munum við sennilegast deyja standandi. Nú
er Evrópa að fara taka kreppuskellinn þar sem lengri tíma tekur að vinna á
stærri samfélögum og Evrópa verður að teljast sem mun stærra samfélag en
Íslendingasamfélagið þó svo slátturinn sé meiri í því smærra.
Nú jæja. Betra
rétt en óraunhæft og raunsæi betra en bjartsýni.
Kreppan er fjárglæfrarafleiðing
og við sem fjárglæfruðum ekkert eða lítið skulum bera byrðarnar. Því þeir sem
stunduðu þessar fjárglæfur eru farnir og líður núna vel annarsstaðar. Það er
meiriháttar. Mér líður stundum eins og við höfum öll verið saman í baði og
sumir hafi ákveðið að míga í baðið því það var svo arðbært. Það fólk er ekki
lengur í baðinu og hér erum við, restin að baða okkur uppúr þvaginu á
spjátrungum. Jibbí og húrra fyrir þeim.
Sunday, October 21, 2012
Að drekka.
Ég drekk. Ég drekk meira að segja mikið að margra sögn. Sú sögn er þó stundum ánægja fólks af því að benda á annað fólk og hefja sig yfir það og er ég reiðubúinn að láta benda á mig, geri oft í því að láta benda á mig. Stundum meðvitað, stundum óafvitandi og stundum vegna þess að það má benda á mann sem sýnir slíka hegðun. Það er góð skemmtun að margra mati.
Wednesday, October 17, 2012
Ráðgefandi er þó alltént það.
Lesandi
góður, þess hefur verið óskað af oss að vér greiðum atkvæði í ráðgefandi
þjóðaratkvæðagreiðslu sem mun fara fram á grundvelli laga nr. 91/2010 um framkvæmd
þjóðaratkvæðagreiðslna þann 20/10’12. Vér skulum að leggjast yfir málið og taka
upplýsta afstöðu. Minna skal það ekki vera. Ef þér hins vegar, lesandi góður,
eruð ei öruggur með hvernig yðar atkvæðum skuli háttað megið þér á næstu dögum
leita hingað, yður til hægðarauka.
Subscribe to:
Posts (Atom)

