Wednesday, March 28, 2012

Litla lambið.



Ef hætta steðjar að er best að vita af því þannig að maður geti brugðist við og helst með góðum fyrirvara. Það gefur manni tíma til að undirbúa viðbragð þegar hættan nálgast og með réttu viðbragði ætti að vera hægt að forðast skaða. Hins vegar reynist það oftast svo að fólk neitar að meðtaka hættuna fyrr en hún bankar hjá þeim og óðagot sem viðbragð kann ekki góðri lukku að stýra. Því er það oft sem fólk þylur upp hættur fyrir hvort öðru og varar við því hvað kunni að gerast. Þetta getur verið mikil hjálp en maður verður þó að vera vakandi fyrir hættunni sem kann að steðja að. Því þó svo að manni hafi verið kynnt hún og maður viti af henni verður viðbragðið þrátt fyrir allt óðagot ef hún kemur manni á óvart þegar hún birtist. Hættan, hver sem hún svo kann að reynast, mun valda meiri skaða því ómeðvitaðri sem viðfangið er. Nú stend ég hér með sauðagæruna hálfvegis niður öxlina og fólkið bendir enn og segir: sjáið litla lambið.  

Sunday, March 18, 2012

Einræði meirihlutans.


Fyrirsögn þessa pistils er mantra sem ákveðnir aðilar sem vilja komast í áhrifastöður í samfélaginu fara með þessa dagana. Lítum á hvað þetta nú þýðir.
einræði HK 1 ráðríki, þvermóðska, þrái 2 félagsfræði/stjórnmál stjórnarfar þar sem einn maður eða lítill hópur manna hefur öll völd í landinu.
meiri•hluti KK • stærri hluti, meira en helmingur.
Þar sem meirihluti verður ekki talinn lítill hópur manna né er mögulegt að einn maður sé meirihluti skv. seinni skilgreiningu Íslensku Orðabókarinnar gerum við ráð fyrir að mantran sé skv. fyrri skilgreiningunni. Að þetta fólk í minnihlutanum sé búið að fá sig fullsatt af ráðríki, þvermóðsku og þráa meirihlutans. Orðræðan er þó á þann veginn að það sé alls ekki boðlegt að þessi meirihluti fái að ráða þar sem þá sem langar til áhrifa og eru í minnihluta, eru ekki áhrifamenn í samfélaginu og þ.a.l. ekki í spillingarstöðu með auðæfi almennings. Bömmer. Einnig er á það látið skína að fyrirsögnin hér að ofan sé haft á s.k. skoðunarfrelsi, ja segjum frekar málhöft. Einræði ergo skoðanafrelsi/málfrelsi/tjáningarfrelsi útum gluggann. Ég sé ekki að það sé svo. Jón Magnússon er ánægður með þessa möntru og fór með hana síðast í dag og spyr hverjum dytti í hug að framkvæma hugmyndir alræðishyggjunnarum einræði meirihlutans en víkja frá hugmyndum og hugsjónum lýðræðisins umvirðingu fyrir öllum skoðunum og rétti fólks til að halda þeim fram?Aldrei minnist ég þess að þegar meirihlutinn ræður hafi skoðunum minnilhutans verið gert hátt undir höfði. En það er víst svo að þegar maður hefur fengið að ráða og svo fær maður ekki lengur að ráða að þá finnst manni að maður ætti að fá að ráða smá því annað væri bara ósanngjarnt gagnvart manni því maður fékk jú einu sinni að ráða og þá var hlustað á mann. Hlýtur að vera sárt og erfitt fyrir fólk sem langar til að vera í áhrifastöðu í samfélaginu og er það ekki því meirihlutinn er annarar skoðunar og ekki á bakvið það ágæta leiðtogaefni sem þetta fólk telur sig vera.
Djöfuls vandræði.

Saturday, March 10, 2012

Það sem hann sagði...

Það sem KLT var að reyna segja hér á undan var þetta:
Vítisenglar og Outlaws, skítið á ykkur og komið ykkur burt, gauragangur verður ekki leyfður á eyjunni.
Alþingismenn, ráðherrar meðtaldir, skítið á ykkur og komið ykkur burt. Augun hafa opnast og þið standið eftir heimskari en for og ætlið að hoppumskoppa til að moka undir rassinn á frænda, fá fokking eftirlaun, fyrir ykkar eigin upphafningu og virðingu. Það er pláss fyrir ykkur í áðurnefndum bifhjólasamtökum. Skítið á ykkur aftur.
Allir fordómafullir einfeldningar, haldið ró ykkar og haldið áfram.

Vikan.


Mikið var þetta nú dásamleg vika. Hún hófst með snjókomu sem jókst og varð að byl sem gekk á með köflum. Maður á sextugsaldri var stunginn og liggur nú banaleguna (ímyndið ykkur að þetta sé ritað eftir að hann deyr). Við skulum gefa okkur að hann hafi ekki skipulagt árásardaginn sem sinn síðasta á meðal manna. Gefum okkur enn fremur að hann hafi ætlað sér þann daginn að fara heim til sín og hitta maka sinn, eiga með honum kvöldverð og kannski kyrrláta stund við að horfast í augu. Maka hans hefur nú sennilegast verið brugðið við tilkynninguna um viðbrögð manns sem maki hans átti samningafund með. Stórkostulegt. 
Árásarmaðurinn er sagður hafa verið í nöp við lögfræðinga. Fordómafullir einfeldningar er hættulegastir. Það er svo auðvelt að telja þeim trú um að eitthvað sé sem er ekki og þeir vilja ekkert heitar en að vera samþykktir af hóp sem metur þá, eða þeir kjósa að meta svo að þeir séu metnir að verðleikum. Ber helst að nefna vélhjólaklúbba sem stunda þá iðju að safna fávitum sem eru til í að fremja glæpi sér til upphafningar, en ég afvegaleiðist hér. Ég þoli ekki fávita en bý í samfélagi þar sem árásir eru ekki leyfðar, nema í sérstökum tilvikum og þá ekki leyfðar með lögum heldur samfélagsgildum. Að vera í nöp við er ekki nægileg ástæða til að ráðast á annan.
Áfram með smjörið, landsdómur tók til starfa og er þetta eitt sérstakasta dæmi um pólitískar ofsóknir á síðari árum. Sérstakt að því leyti að þetta hefur ekki verið stundað í fjöldamörg ár og hefur ekki verið talið til siðs í vestrænni menningu margt lengi. Nú kann einhver að segja að þetta séu ekki ofsóknir en ímyndið ykkur að þetta sé ritað í framtíðinni. Þetta er einnig sérstakt að því leyti að landsdómi hefur aldrei verið slegið saman áður, þannig að það skrifast samstundis í sögubækurnar. Ofsóknirnar, hins vegar eru svo nálægt okkur að við gerum okkur ekki grein fyrir þeim líkt og blað sem ritað er á en er ólæsilegt vegna nálægðar við augun. 
Er engin leið til að fá fólk til að reyna haga sér eins og fólk en ekki svín? Erum við bara að vilja leiðindi? Því ef það eru leiðindi sem þið viljið þá eigum við 1,5 leiðindi sem okkur dauðlangar til að prófa. Reynum að haga okkur krakkar. Annars verður tekið í taumana og ég nenni ekki að standa í því sem stendur. Don't test me.