Monday, December 26, 2011
...og meira.
Meira.
Bein tilvitnun.
Sunday, December 25, 2011
StóriÉg.
Ég strengdi áramótaheit fyrir árið 2011 sem og er að renna sitt skeið. Það kollféll með byrðina og þungt var það. Fyrstu skrefin voru létt og áhugaverð en svo kom fljótlega í ljós að það var bara ekkert gaman að hafa strengt þetta heit. Þá kárnaði nú almennt. Þrír mánuðir liðu með herkjum og uppá aðrar náðir þar sem áramótaheitið snérist um afneitun, eða föstu. Svo þegar sumraði var ákveðið að velta sér lock, stock and barrell af vagninum og mér var gríðarlega létt þá stund. Hinsvegar hef ég enga ánægju af því að segjast ætla gera eitthvað og geta ekki staðið við það. Ég geri mér grein fyrir því að það er til fólk sem vill fá að lifa í ljómanum af aðgerðinni, sem það hyggst framkvæma, áður en hún er framkvæmd. Þetta fólk finnst mér ekkert sérstakt en ég dæmi of fljótt. StóriÉg kýs heldur að reyna segja sem minnst og standa þá við það sem ég segi. Þetta voru því erfið skref og á ég þá ekki við bisið í kringum áramótaheitið sem slíkt heldur lexíuna um að rjúfa sögn. Þetta kallast yfirleitt að standa ekki við orð sín, gefin orð. Að segjast ætla gera hluti sem maður hafði aldrei ætlað sér að standa við; að mæla málið og geta svo ekki eða kjósa svo ekki að ganga gönguna. Þá kemur að því að maður hittir fólk sem langar að heyra hvað fór úrskeiðis með heitið. Eðlileg spurning hafi maður átt það til að gaula yfir alla hóla og dali yfirlýsingum um stórhuga áætlanir og hafi svo skitið í buxurnar. Það er ekkert grín að skíta á sig. Sem betur fer gaula ég ekki. Árið 2011 lærði ég að halda mér saman og fékk mér eitt sinn mjög stóra sneið af auðmýkt, en bara einu sinni mjög stóra. Það er vika eftir og mig langar ekkert í risastóra sneið. En... Isn‘t we all supahsized anyhow?
Næst verður fjallað um stofnun heiðursborgara Reykjavíkur. Hugmyndin er sú að Reykvíkingar geti kosið Heiðursborgara Reykjavíkur til 3 ára. Nafnbótin er þakkir almennings til fyrirmyndar borgara. Þess hins sama og gengur snyrtilega um, hrækir ekki á götuna, setur sorp í sorphirslur, brýtur ekki og bramlar á götum úti og býður reglulega góðan dag öðrum samborgurum til huggunnar og hlýju. Ég er löngu byrjaður að æfa mig þannig að ég hlýt að vera kosinn fyrstur.
Kv. KLT
Monday, December 19, 2011
Dauði
Sunday, December 18, 2011
Þingskjal 354 — 304. mál.
Frumvarp til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og til að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á stofnskrá sjóðsins. (Lagt fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi 2011–2012.)
S.l. föstudag var karpað á Alþingi Íslendinga um hvort heimila ætti ríkisstjórn Íslands að samþykkja hækkun á s.k. kvóta Íslands, sem er í raun fjárframlag Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). AGS var stofnaður skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar og var Ísland eitt af 29 stofnríkjum hans. Í dag eru 187 ríki aðilar að honum.
Nú hefur Ísland nokkrum sinnum tekið lán hjá sjóðnum. Fyrst árið 1960 uppá 6,8 milljónir USD og var það tekið í tengslum við efnahagsaðgerðir þáverandi ríkisstjórnar. Síðan þá hefur Íslandi gengið illa að forðast þessi blessuðu smálán vegna halla á viðskiptum við útlönd: 15 milljónir USD á árunum 1967–1968, 62,2 milljónir SDR 1974–1976 og 21,5 milljónir SDR árið 1982 úr lánaflokki sem er ætlaður til að mæta útflutningsbresti. Á sama ári tók Ísland einnig til sín 9 milljónir SDR af gjaldeyrisinnstæðu Seðlabankans hjá sjóðnum. Árið 2008 tók Ísland nýtt lán hjá sjóðnum í tengslum við sameiginlega efnahagsáætlun að fjárhæð 1.400 milljónir SDR. SDR stendur fyrir Special Drawing Rights eða Sérstök Úttektar Réttindi(SÚR). SÚR er ekki gjaldmiðill sem slíkur heldur stuðull á heimild til úttektar á gjaldeyri sem meðhöndlaður er af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Gott og vel þá erum við komin að safaríka kaflanum. Kvóti Íslands hækkar úr 117,6 milljónum SÚR í 321,8 milljónir SÚR, sem jafngildir um 58,3 milljörðum ISK á skráðu miðgengi SÚR 23. mars 2011. Fjórðungur hækkunarinnar verður greiddur í SÚR en þrír fjórðu hlutar greiðast í íslenskum krónum, sem fáir vita hvers virði er. Sá hluti kvótahækkunarinnar, sem greiddur er í SÚR er að fjárhæð um 51 milljón SÚR, sem er að jafnvirði rúmlega 9.254 millj. kr. Myndar þessi hluti sérstaka gjaldeyrisinnstæðu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og telst áfram til gjaldeyrisforða Seðlabankans. Þrír fjórðu hlutar kvótahækkunarinnar eru ekki inntir af hendi heldur eignast AGS innstæðu í Seðlabankanum sem nemur umræddri fjárhæð. Hlutdeild Íslands í kvótum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hækkar nokkuð við þessa ágætu breytingu, úr 0,055% í 0,067%.
Þannig að, allan liðlangan daginn, var karpað og þráttað um hvort við ættum að heimila ríkisstjórn Íslands, sem er aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og alltaf að fá lán hjá honum, að samþykkja hækkun á fjárframlögum til sjóðsins. ¾ hækkunarinnar þarf ekki að greiða heldur verður það fært, strikað, krassað og krossað í bókum og við eftirlátum AGS að geyma fyrir okkur 25% eða um 9 milljarða sem við kunnum ekki að fara með.
Much ado about nothing, anyone?
Sunday, December 11, 2011
Bubba sorcerer.
I'm asked to get my coat on and drive to the sea and this I know I'm well capable of doing, so I do. My mum gets in the car and we head off to the sea. 'What are we gonna do there' I ask her. She replies that we’re going to see Bubba Sorcerers' ex-wife. 'Alright' I say a bit confused but I must mention that there are a few things in this world that I do not understand. I am young and I am simple. We get to the village by the sea and come to Bubba Sorcerers' ex- wife’s' house! Now… this is quite a big house but it has recently been burnt down. I try to point this out to my mum, but she doesn't seem to realise this so very critical fact. We walk around the house. It is very late at night and it is very dark. So we look into the window, and as I suspected one is not aloud to live in a burnt down house, and inside is no one. We go back to the front and see a light in the garage, and my hopes of going home have vanished by this. We go to the door, knock and no answer. I do not care! Knock again, and open and inside is a woman. Flesh and bone under about fifteen layers of blankets lays a woman of flesh and bone and does not like to be disturbed in her solitude of thinking. About what, no one will ever guess, no one cared then and I reckon no one will now or in the future. My mum wants to help this woman, there is no heating in the house and it is the middle of winter. I feel- sense that something is- was about to happen. We gave death a freight! My mum lectures this woman and gives her words of rehabilitated comfort talk: one day at a time! I reckon she would've anyhow, taken it one day at a time, she wasn't making any plans. We get in the car and head home, just given a total stranger comfort in the time of need. I ask her what now and she tells me we're going home. Home is where Bubba Sorcerer lives. In my house! He and my mum were in rehab together. Getting close and being lonely is the recipe for an affair and that's what they we're having; a love affair, sin amor. He was called Bubba Sorcerer 'cause his mum was a witch, and that I believed. He didn’t last very long on the wagon and as much as my mum wanted to be his rock, she was hardly afloat herself. We had to throw him out and that came to be my job, throw them men with problems out of my house that my mum had invited in and given shelter, with barely enough room for her. One day I came home from school and found Bubba sleeping in my bed. I woke him up and asked him to leave, that was my bed and he wasn't the cleanliest man in the world, when he got up I found my brothers CD's under the pillow. He was poor and I knew that, but so were we. Fight of the lowest, it wasn't about survival, it is about cheating your fellow man to watch him drop and then... one feels like a man, but you could never be one. Not in this world.