Monday, December 26, 2011

Bein tilvitnun.

Eirðarlaus.

Um dýrð var mig farið að dreyma.
Hvar dvelst þér ... á leiðinni ... heima?

Hvert andartak verður að ári.
Hver einasta hugsun að sári.
Hver tilfinning að tári.

Nú hefur stefnumótsstundin
stolist í eilífðarblundinn. -

Þú mátt hugstríð mitt hundraðfalda
og helvítiskvölum valda
hjartanu um aldir alda.

Þín vegna er ljúft að líða,
elska og bana bíða.

-Davíð Stefánsson, Svartar fjaðrir.(1919)

No comments: