Saturday, March 10, 2012

Vikan.


Mikið var þetta nú dásamleg vika. Hún hófst með snjókomu sem jókst og varð að byl sem gekk á með köflum. Maður á sextugsaldri var stunginn og liggur nú banaleguna (ímyndið ykkur að þetta sé ritað eftir að hann deyr). Við skulum gefa okkur að hann hafi ekki skipulagt árásardaginn sem sinn síðasta á meðal manna. Gefum okkur enn fremur að hann hafi ætlað sér þann daginn að fara heim til sín og hitta maka sinn, eiga með honum kvöldverð og kannski kyrrláta stund við að horfast í augu. Maka hans hefur nú sennilegast verið brugðið við tilkynninguna um viðbrögð manns sem maki hans átti samningafund með. Stórkostulegt. 
Árásarmaðurinn er sagður hafa verið í nöp við lögfræðinga. Fordómafullir einfeldningar er hættulegastir. Það er svo auðvelt að telja þeim trú um að eitthvað sé sem er ekki og þeir vilja ekkert heitar en að vera samþykktir af hóp sem metur þá, eða þeir kjósa að meta svo að þeir séu metnir að verðleikum. Ber helst að nefna vélhjólaklúbba sem stunda þá iðju að safna fávitum sem eru til í að fremja glæpi sér til upphafningar, en ég afvegaleiðist hér. Ég þoli ekki fávita en bý í samfélagi þar sem árásir eru ekki leyfðar, nema í sérstökum tilvikum og þá ekki leyfðar með lögum heldur samfélagsgildum. Að vera í nöp við er ekki nægileg ástæða til að ráðast á annan.
Áfram með smjörið, landsdómur tók til starfa og er þetta eitt sérstakasta dæmi um pólitískar ofsóknir á síðari árum. Sérstakt að því leyti að þetta hefur ekki verið stundað í fjöldamörg ár og hefur ekki verið talið til siðs í vestrænni menningu margt lengi. Nú kann einhver að segja að þetta séu ekki ofsóknir en ímyndið ykkur að þetta sé ritað í framtíðinni. Þetta er einnig sérstakt að því leyti að landsdómi hefur aldrei verið slegið saman áður, þannig að það skrifast samstundis í sögubækurnar. Ofsóknirnar, hins vegar eru svo nálægt okkur að við gerum okkur ekki grein fyrir þeim líkt og blað sem ritað er á en er ólæsilegt vegna nálægðar við augun. 
Er engin leið til að fá fólk til að reyna haga sér eins og fólk en ekki svín? Erum við bara að vilja leiðindi? Því ef það eru leiðindi sem þið viljið þá eigum við 1,5 leiðindi sem okkur dauðlangar til að prófa. Reynum að haga okkur krakkar. Annars verður tekið í taumana og ég nenni ekki að standa í því sem stendur. Don't test me.

No comments: