Fyrirsögn
þessa pistils er mantra sem ákveðnir aðilar sem vilja komast í áhrifastöður í
samfélaginu fara með þessa dagana. Lítum á hvað þetta nú þýðir.
ein•ræði HK 1 ráðríki, þvermóðska, þrái 2
félagsfræði/stjórnmál stjórnarfar þar sem einn
maður eða lítill hópur manna hefur öll völd í landinu.
meiri•hluti KK • stærri hluti, meira en
helmingur.
Þar
sem meirihluti verður ekki talinn lítill hópur manna né er mögulegt að einn
maður sé meirihluti skv. seinni skilgreiningu Íslensku Orðabókarinnar gerum við
ráð fyrir að mantran sé skv. fyrri skilgreiningunni. Að þetta fólk í
minnihlutanum sé búið að fá sig fullsatt af ráðríki, þvermóðsku og þráa
meirihlutans. Orðræðan er þó á þann veginn að það sé alls ekki boðlegt að þessi
meirihluti fái að ráða þar sem þá sem langar til áhrifa og eru í minnihluta,
eru ekki áhrifamenn í samfélaginu og þ.a.l. ekki í spillingarstöðu með auðæfi
almennings. Bömmer. Einnig er á það látið skína að fyrirsögnin hér að ofan sé
haft á s.k. skoðunarfrelsi, ja segjum frekar málhöft. Einræði ergo skoðanafrelsi/málfrelsi/tjáningarfrelsi útum gluggann.
Ég sé ekki að það sé svo. Jón Magnússon er ánægður með þessa möntru og fór með
hana síðast í dag og spyr hverjum dytti í hug „að framkvæma hugmyndir alræðishyggjunnarum einræði meirihlutans en víkja frá hugmyndum og hugsjónum lýðræðisins umvirðingu fyrir öllum skoðunum og rétti fólks til að halda þeim fram?“ Aldrei minnist ég þess að
þegar meirihlutinn ræður hafi skoðunum minnilhutans verið gert hátt undir
höfði. En það er víst svo að þegar maður hefur fengið að ráða og svo fær maður
ekki lengur að ráða að þá finnst manni að maður ætti að fá að ráða smá því
annað væri bara ósanngjarnt gagnvart manni því maður fékk jú einu sinni að ráða
og þá var hlustað á mann. Hlýtur að vera sárt og erfitt fyrir fólk sem langar
til að vera í áhrifastöðu í samfélaginu og er það ekki því meirihlutinn er annarar
skoðunar og ekki á bakvið það ágæta leiðtogaefni sem þetta fólk telur sig vera.
Djöfuls
vandræði.
No comments:
Post a Comment