Eftir
að hafa varið 7klst í að bisa við verkefni sem ég taldi mig vera kominn með
lausn á hef ég komist að þeirri niðurstöðu að lausnin hafi verið að öðru
verkefni. Þannig að þegar ég hafði lokið þessu verkefni mínu, að ég taldi með
ágætum, kom í ljós að verkefnið sem ég hafði leyst úr með lausninni minni var í
rauninni ekki vandamálið né verkefnið sem ég hefði átt að vera fást við. Þetta
ágæta verkefni sem ég leysti með lausninni á vandamáli sem var ekki vandamálið,
átti að kosta mig 36þús. kr. gengið frá. Það sem sýnir sig svo sem vandamálið
er öllu kostnaðarmeira og kostar 5x fyrrgreind fjárhæð. Mjög mikið. Svekkelsið
felst í því að ég gat með engu móti greint hvort vandamálið ég átti að vera
fást við fyrr en ég hefði lokið öðru hvoru. Eftir bjartsýnispepp og
vísbendingar sem bentu á að ódýrara verkefnið væri vandamálið og það varð
sjúkdómsgreiningin, hefst aðgerðin. Hún tók sem fyrr segir 7klst. og að henni
lokinni var maskínan ræst. Þá kemur í ljós að meinið er enn til staðar. Meinið
að þessu sinni var hljóð sem hljómaði líkt og lofti væri þrýst af miklum krafti
í gegnum þröngt gat og myndaði einskonar spreyhljóð við gang bifreiðar. Við
þessa síðari sjúkdómsgreiningu geri ég með grein fyrir að ég hafi látið
blekkjast af sjálfum mér með óraunhæfri bjartsýni og trúgirni því það hentaði
mér betur að það væri þessi lausn sem ég komst að og komst svo að sú lausn var
ekki lausn á vandamálinu. Þetta þýðir að ég hafi varið 7klst til einskis þar
sem sú vinna sem ég lagði í verkefnið sem var ekki lausnin mun vera fjarlægð að
nýju til að framkvæma verkefnið skv. síðari sjúkdómsgreiningu. Jebbs, meiriháttar.
Ég
hugga mig þó við að ég nýtti tímann einstaklega vel og veit nú meira en ég
vissi áður. Einnig á þessum tíma sem talinn er í verkefnið eru 5 hurðir smurðar
og opnast bæði innan og utanfrá. Ég hef lengi verið að velta fyrir mér að fá
mér nýja bifreið vegna þess að kostnaðurinn við rekstur og viðhald er að verða
manni um megn. Svo horfi ég á hann, með bæði ljósin skínandi skært að framan,
skýr einsog glitrandi stjörnur. Hann er fallegur. Ég hef því ákveðið að láta
verða af þessum fjárútlátum og verja þeim tíma með honum sem þarf til að leysa
hitt verkefnið sem ég hefði átt að vera leysa. Hann á það skilið frá mér
blessaður.
