Kvöldið hefst líkt og önnur kvöld að við A hittumst á staðnum til að spila ballskák, um kl. 20:30. Þetta kvöld er sérstakt að því leiti að einn, B góður vinur okkar A, virðist eitthvað sérstaklega drukkinn og hefur aldrei verið áhugamaður um ballskák. Hann er þó mættur.
Við fáum okkur drykk, kúlur og borð og förum að spila. B virðist sífellt drukknari með tilheyrandi látum en leiknum er þó haldið áfram þrátt fyrir hróp og látalæti í ofsageði drykkjunnar. Hvað um það leikið er áfram svo kemur að því að B fer á salernið. Leiknum er haldið áfram.
Að nokkrum tíma liðnum kemur upprennandi blaðatalsmaður allskonar og gengur framhjá til að fara á salerni en kemur aftur að vörmu spori og biður okkur A að koma aðeins með honum og spyr hvort við séum með gjörning inná salerni. Við förum að sjálfsögðu með honum að dyraopi salernis karla. Þar blasa við okkur hlandskálar á vinstri hönd, vaskar á hægri og gegnt okkur eru tveir klefar, annar þeirra opinn með öllum fötum B en hinn lokaður. Eftir að hafa velt þessu fyrir mér í 7 sek. lýsi ég niðurstöðu minni upphátt að kauði hlyti að hafa skitið á sig og sé að hreinsa sig í lokaða klefanum og fæ staðfestingu með hlæjandi samþykki úr lokaða klefanum. B opnar hægri klefann og kemur út ber að neðan og það er undarlega eðlilegt að sjá hann þarna svona útlítandi líkt og við værum að koma eða fara í sund, nema hér var engin laugin. B sagðist svo hafa sturtað nærbuxunum sínum niður klósettið og að buxurnar hefðu sloppið að mestu frá þessum vandræðum og vildi ólmur spila næsta leik.
Síðan þá hefur myndast undarlegur leki í loftinu á staðnum sem ekki virðist vera hægt að rekja. Ég hef þó einn grunaðan.
No comments:
Post a Comment