Monday, April 2, 2012

Að kjámaka.

Ég leit útum gluggann í norður í dag og áttaði mig á því að vorið væri komið. Það hafði laumað sér inn með belgingnum og hverri lægðinni á eftir annarri með gríðarlegum umhleypingum síðasta hálfan mánuð og ég varð glaður. Það léttist á mér brúnin og nú reyni ég aldrei að finna tækifæri til að halda uppá því lífið ætti að vera eitt stórt uppáhald en þetta kallaði á veislu. Þessi fjallasýn í fjarska útum gluggann gaf til kynna von sem kemur á hverju ári og tilkynnir að þessi vetur sé þá að baki. Hann var ágætur þessi nemlig. Það komu veður sem komu manni á óvart og sumum í opna skjöldu. Gaman. Nú kemur vorið með fuglasöng, nýjabrum og angan. Maður gæti hreinlega hafa orðið ofsaglaður en iðrun og sektarkennd voru á námskránni í mínum skóla þannig að það var ekki í boði. Eftir slíkt nám fellur maður ekki fyrir lauslæti vorsins þótt margir karlar verði iðulega krunkaralegir. Sumir breytast jafnvel í svíndýr sem kjámaka og láta flírulega framan í aðra eins og þeir séu eitthvað merkilegri en önnur svíndýr. Fallegt vorið.

No comments: