Wednesday, November 21, 2007

2 cd.

Upplýsingar um 25 milljónir einstaklinga hafa glatast í pósti á Bretlandi.

Á tímum þar sem einkennisþjófnaður er gróðatækifæri þá eru þetta ekki góðar fréttir fyrir þá sem eru skráðir á þessum 2 geisladiskum sem báru upplýsingarnar. Ekki er þó allt breska þýðið á þessum diskum heldur einungis þeir sem hafa átt börn í Bretlandi og þegið barnabætur. Væri einungis um nöfn að ræða þá væri nú engin frétt heldur er einnig útlistað heimilisfang viðkomandi, fæðingardagur, sjúkrasamlagsnr. (social security nr.) og svo upplýsingar um bankareikninga viðkomandi og númer þeirra. Gögnin voru send í óskráðum pósti hjá póstflutningafyrirtækinu TNT.

Paul Gray stjórnarmaður HMRC (HM Revenue og Customs) hefur sagt af sér og er þrýstingur frá stjórnarandstöðunni að fjármálaráðherran geri það líka.

Lögreglunni hefur nú verið nú verið fengið það verkefni að finna tvo geisladiska í London sem voru sendir í pósti 18. október á þessu ári. Skelfing er að grípa um sig hjá fólki sem telur nafn sitt verið komið í gönur.

Nú myndi ég halda að það væri ekkert sem mælti á móti því að senda þessar upplýsingar með rafrænum hætti. Aukin áhersla hefur verið lögð í öryggisferli frá því í september þegar upplýsingar um 15 þúsund einstaklinga glötuðust á svipaðan hátt.

Líkurnar eru 1/25.000.000 á því að verða einn útvaldra af hröppum sem ætla að græða af þessum diskum sérstaklega. Bretar voru alls 60 milljónir á síðasta ári og áður urðu um 12 þúsund Bretar fyrir barðinu á persónustuldi á hverju ári sem er 0,02% af þýðinu. Samkvæmt þessu munu því um 5 þúsund Bretar lenda í vandræðum vegna diskanna tveggja. Líklega mun aðgengi auka glæpatíðni og gera má ráð fyrir tvöföldun sem gera þá um 10 þúsund manns.

Umræðan sem hefur verið í fullu mæli frá því í gær hefur snögglega farið yfir helstu hættur og er þar með nefnt að barnaníðingar gætu notað þessar upplýsingar, til að nálgast fórnarlömb á spjallrásum og almennt á internetinu. Ég sé nú ekki í fljótu bragði hvernig slíkar upplýsingar geta stytt eða auðveldað leiðina að barni og því ekki þörf á meiri árvekni þar. Hins vegar er alveg grafalvarlegt að þetta lendi í höndunum á þrjótum. Gefið er í skyn að með þessum upplýsingum sé hægt að versla á internetinu og þá nota upplýsingarnar sjálfur þannig að maður gangi í hlutverk fórnarlambsins. Einnig er bent á að hægt sé að selja upplýsingarnar þeim sem kunna að fara glæpsamlega með slíkar upplýsingar og eru til í að greiða fyrir aðgengi. Fyrir utan augljósu ástæðuna með fjármálin þá var tilgreint að hægt væri að kaupa farsíma á nafni fórnarlambsins. Í raun voru engin takmörk fyrir því hvað hægt væri að gera með slíkar upplýsingar. Þannig að svona lítur þetta út fyrir mér: Það er mjög ólíklegt að upp komi vandræði hafi maður yfir höfuð verið skráður á þessum geisladiskum og muni svo ólíklega henda að maður verði fyrir barðinu á persónustuldi þá er engin leið að gera ráðstafanir því enginn veit hvaðan hættan muni steðja að.

No comments: