Friday, November 30, 2007
Kennari fangelsaður í Súdan vegna nafngiftar.
Bresk kona sem starfaði sem kennari hefur verið kærð og dómfelld vegna nafngiftar á bangsa í bekknum hennar. Með atkvæðagreiðslu 7 ára barna í bekknum var bangsinn nefndur Múhameð. Hún hefur verið dæmd til 15 daga fangelsisvistar en fyrir utan hrópa 1.000 manns að taka eigi hana af lífi.
Mér líst illa á þetta og vona sannarlega að trylltur lýðurinn fái ekki að ráða. Myndirnar af SKY fréttastofunni sýna fólk dansandi á götum úti, með flögg, gólandi að það ætti að drepa hana fyrir slíka vanvirðingu. Mér finnst þetta brjálæði. Er þetta útaf spámanni sem slík vitfirring á sér stað? Þetta verður að stöðva og það sem fyrst.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment