Tuesday, July 24, 2012
Er gestrisni að bjarga sjálfbjarga?
Mikið óskaplegum tíma og fjármunum hefur verið varið í leitarför hjá
björgunarsveitunum uppá síðkastið og skal engan undra. Það var farið í að leita
að ísbirni sem aldrei steig á strönd né sást en það var einn útlendingur sem sá
næstum því einn, en það var selur. Þyrlan skaust á loft að leita að einhverju
sem var ekki. Fólk um sextugt ákvað að ganga smá spotta en sáust hugsanlega
vera snúa við og var það tilkynnt til næsta landvarðar af mestu gæsku en þessi
tilkynning var ályktun en ekki vissa og því fór þyrlan á loft að leita að fólki
um sextugt sem gengur í rólegheitunum yfir fjöll og fyrnindi eins og fólki um
sextugu er einu lagið en hleypur ekki í offorsi. Svo var leitað að ungu pari, stúlku
frá þýskalandi og dreng frá austurríki og það var svo tilkynnt sem
misskilningur. Nú síðast var verið að bjarga fólki niður af einhverri hengjunni
sýndist mér. Það var þá för til einhvers. Kannski heppilegast væri að upplýsa
fólk um hvernig tilkynningarskyldan virkar best og hver sér um hvað fyrir
hvern. Maður tilkynnir sig sjálfur á næsta áfangastað.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment