Við viljum fyrir
alla muni sleppa þessu öllu en hér erum við stödd. Í kyrrstöðu baráttu þar sem
beðið er eftir hinu minnsta tækifæri til að ganga til atlögu af fullum krafti. Við
erum með 100% athygli, 20/20 sjón og heimsmeistari í snar, allt alltílagi.
Hér stöndum við og
metum stöðuna í hljóði og sjón og veigrum okkur við viprum. Ástandið er kvikt.
Segi einn eitt verður ástandið kvikfimt. Kvikfimt er núna en blossann vantar.
Komi blossi erum við öll í veseni en það okkar sem varpar blossanum hefur
einhver líkindi á því að koma sér undan með vitundina um að varp sé núna og ráðist
að næstu útgönguleið, 23%.
No comments:
Post a Comment