Maður
að nafni Gregor, situr náfölur í tölvustofu Odda, einum af byggingum Háskóla
Íslands. Það eru próf og ég þarf að leggja hart að mér við slíkt nám og
raunverulega nema það sem er verið að kenna. Ég rölti mér til hans og spyr
hvernig hann hafi það og honum bregður þegar ég yrði á hann, honum er svo mikið
niðri fyrir. Það var orðið að venju hjá okkur að fara útfyrir og reykja þegar
við áttum stund og nú sýndist vera einmitt sú stund. Hann lítur upp á mig þar sem
hann situr náfölur fyrir framan tölvu og segir mér að heimurinn sé að fara
umturnast eins og við þekkjum hann, að það sé verið að fara ráðast á BNA. Nýju
Jórvík nefndi hann til staðfestingar og sá sem myndi standa fyrir ráðum væri
einn Osama Bin Laden, maður sem ég hafði aldrei þá, heyrt nefndan. Oft síðan. Ég
var fullur efasemdar og hélt nú að loksins hefði ég hitt mann sem hefði lesið yfir sig,
leiðinlegt að það hefði verið einn af mínum samt. Við fórum út að reykja.
Gregor:
Ég er ekki spámaður, en ég sé það, ég veit að það er verið að fara ráðast á
BNA. Ég sé það í ritinu og hvað það segir. Þú veist. Ég er að nema symbolisma,
táknfræði og það liggur ljóst fyrir að Osama Bin Laden muni gera árás á New
York.
DS:
Hvernig veistu, hvað sástu?
Gregor:
Í biblíunni.
DS:
Hablaha, Gregor, slakaðu á.
Gregor:
Nei, DS ég sá þetta og veit þetta muni gerast. Eins og ég segi þá er ég enginn
spámaður, en ég er klár á þessu, sjáðu, og hann sýndi mér kafla í biblíunni
þessu til staðfestingar. Opinberun Jóhannesar, skækjan mikla, 17 kafli eða hvað þetta nú er.
1Og einn af englunum sjö, sem halda á skálunum sjö, kom til mín og sagði: "Kom hingað, og ég mun sýna þér dóminn yfir skækjunni miklu, sem er við vötnin mörgu. 2Konungar jarðarinnar hafa drýgt saurlifnað með henni, og þeir, sem á jörðinni búa, hafa orðið drukknir af saurlifnaðar víni hennar."
Skækjan
mikla er s.s. BNA.
3Og hann leiddi mig burt í anda á eyðimörk. Og ég sá
konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum, og hafði það sjö
höfuð og tíu horn. 4Og konan var skrýdd purpura og skarlati, og var
búin gulli og gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan
viðurstyggðar, og var það óhreinleikur saurlifnaðar hennar. 5Og á
enni hennar var ritað nafn, sem er leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir
hórkvenna og viðurstyggða jarðarinnar. 6Og ég sá að konan var
drukkin af blóði hinna heilögu og af blóði Jesú votta. Og ég undraðist
stórlega, er ég leit hana.
Konan
sem um ræðir er Frelsisstyttan
í New York. Hún er úr kopar og mun kopar víst vera rauður áður en hann veðrast.
7Og engillinn sagði við mig: "Hví ertu forviða?
Ég mun segja þér leyndardóm konunnar og dýrsins, sem hana ber, þess er hefur
höfuðin sjö og hornin tíu: 8Dýrið, sem þú sást, var, en er ekki, og
það mun stíga upp frá undirdjúpinu og fara til glötunar. Og þeir, sem á jörðu
búa, þeir, sem eiga ekki nöfn sín skrifuð í lífsins bók frá grundvöllun
veraldar, munu undrast, er þeir sjá dýrið sem var og er ekki og kemur aftur.
9Hér reynir á skilning og speki. Höfuðin sjö eru sjö
fjöll, sem konan situr á. Það eru líka sjö konungar.
Hér
vildi Gregor meina að þessir sjö konungar hafi verið G7 og hún er einnig með sjö
horn á kórónunni. Frelsisstyttan er þó hvorki með fjall á hausnum né situr hún
á hornunum. Smáatriði víst.
10Fimm eru fallnir, einn er nú uppi, annar er ókominn
og er hann kemur á hann að vera stutt. 11Og dýrið, sem var, en er
ekki, er einmitt hinn áttundi, og er af þeim sjö, og fer til glötunar.
Hér
bendir Gregor réttilega á að það sem áður hét áður G6, svo G7 heitir einmitt G8 í dag.
12Og hornin tíu, sem þú sást, eru tíu konungar, sem
enn hafa eigi tekið konungdóm, heldur fá vald sem konungar eina stund ásamt
dýrinu. 13Þessir hafa allir eitt ráð, og máttinn og vald sitt gefa
þeir dýrinu. 14Þessir munu heyja stríð við lambið. Og lambið og
þeir, sem með því eru, hinir kölluðu og útvöldu og trúu, munu sigra þá, - því
að lambið er Drottinn drottna og konungur konunga."
15Og hann segir við mig: "Vötnin, sem þú sást,
þar sem skækjan situr, eru lýðir og fólk, þjóðir og tungur. 16Og
hornin tíu, sem þú sást, og dýrið, munu hata skækjuna og gjöra hana einmana og
nakta, eta hold hennar og brenna hana í eldi, 17því að Guð hefur
lagt þeim í brjóst að gjöra vilja sinn og vera samráða og gefa ríki þeirra
dýrinu, allt til þess er orð Guðs koma fram. 18Og konan, sem þú
sást, er borgin mikla, sem heldur ríki yfir konungum jarðarinnar."
Þetta
er augljóslega þvæla. En Gregor sagði okkur samt frá því að Osama Bin Laden
myndi ráðast á BNA, NY nánar tiltekið, í maí 2001. Gott og vel.
Málið
lítur því þannig við að hér hafi verið einn háskólanemi, tveir reyndar, með upplýsingar
um að það væri árás á BNA í vændum, en meanwhile back at the ranch hafi engan
órað fyrir slíku, ekki einu sinni leyniþjónusta BNA, með Donald Rumsfeld í
fararbroddi. Háskólaneminn las þetta með táknfræði í gegnum bók bókanna for
fríks sake, en Donald Rumsfeld bjó þetta til. Hr. Rumsfeld varð þó á að segja
vini sínum frá þessu því George Walker Bush er enginn leikari eins og Ronald Reagan og gat ekki einu
sinni þóst vera hissa er honum voru færðar fréttirnar að leikþátturinn væri
hafinn. Hr. Malicious Drugconniving Littlemofo hefur þurft að fá samþykki,
undirritað af aperapingjunkie whoreofachild mr. W. Gregor var heldur ekki hissa. Þegar við hringdum í hann þann 11/9'01, í miklu uppnámi yfir því að búið væri að ráðast á BNA, var hann í hljómplötuverslun hinn rólegasti og spurði mig hvort hann hefði ekki verið búinn að segja mér það. Ég svaraði játandi. Gott
og vel.
Ekki éta skít gott fólk, ekki.
Ekki éta skít gott fólk, ekki.