Tuesday, October 23, 2012

Kreppan.


Nú heyrum við því fleygt fram að Ísland sé á leið út úr kreppunni. Gott og vel og dreymi fallega. Einnig heyrist sagt og það stundum í fréttum eða s.k. fréttatengdu efni að önnur kreppa vofi yfir. Ísland á leið út úr kreppunni og önnur kreppa vofir yfir. Þessar tvær staðhæfingar hér að ofan eru rangar. Þar sem í raun er Ísland í uppsveiflu frá höggi kreppunnar sem hófst um mitt ár 2007 og stendur enn yfir þannig að ekki er rétt að tala um að önnur kreppa vofi yfir þar sem þetta er sama kreppan. Það tekur hins vegar afar langan tíma fyrir samfélög að falla á hnén þar sem reisnin er töluverð og munum við sennilegast deyja standandi. Nú er Evrópa að fara taka kreppuskellinn þar sem lengri tíma tekur að vinna á stærri samfélögum og Evrópa verður að teljast sem mun stærra samfélag en Íslendingasamfélagið þó svo slátturinn sé meiri í því smærra.
Nú jæja. Betra rétt en óraunhæft og raunsæi betra en bjartsýni.
Kreppan er fjárglæfrarafleiðing og við sem fjárglæfruðum ekkert eða lítið skulum bera byrðarnar. Því þeir sem stunduðu þessar fjárglæfur eru farnir og líður núna vel annarsstaðar. Það er meiriháttar. Mér líður stundum eins og við höfum öll verið saman í baði og sumir hafi ákveðið að míga í baðið því það var svo arðbært. Það fólk er ekki lengur í baðinu og hér erum við, restin að baða okkur uppúr þvaginu á spjátrungum. Jibbí og húrra fyrir þeim.

Sunday, October 21, 2012

Að drekka.


Ég drekk. Ég drekk meira að segja mikið að margra sögn. Sú sögn er þó stundum ánægja fólks af því að benda á annað fólk og hefja sig yfir það og er ég reiðubúinn að láta benda á mig, geri oft í því að láta benda á mig. Stundum meðvitað, stundum óafvitandi og stundum vegna þess að það má benda á mann sem sýnir slíka hegðun. Það er góð skemmtun að margra mati. 

Wednesday, October 17, 2012

Ráðgefandi er þó alltént það.

Lesandi góður, þess hefur verið óskað af oss að vér greiðum atkvæði í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem mun fara fram á grundvelli laga nr. 91/2010 um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna þann 20/10’12. Vér skulum að leggjast yfir málið og taka upplýsta afstöðu. Minna skal það ekki vera. Ef þér hins vegar, lesandi góður, eruð ei öruggur með hvernig yðar atkvæðum skuli háttað megið þér á næstu dögum leita hingað, yður til hægðarauka.

Fall af stalli.


Sælt veri fólkið. Það er mikið um að vera þessa dagana og af mörgu að taka sem vert er að fara yfir.
BNA: Lance Armstrong sjöfaldur sigurvegari (1999-2005) í Tour de France hjólreiðakeppninni hefur ákveðið að hætta að neita ásökunum um að hafa notað frammistöðuaukandi lyf. Hann hefur hætt að neita en játar ekki. Hann sigraðist þó á krabbameini í eistum og má það teljast hinn vænlegasti sigur. Hann er sekur en hvaða máli skiptir það þegar það er á allra vitund að þeir sem sigra í Tour de France er á lyfjum sem ekki er verið að leita að. Það er forsenda frammistöðuaukandi lyfja að þau séu sífellt að þróa ný lyf sem ekki greinast við leitun og því alltaf einu skrefi á undan. Erfiður bissness þar sem stöðnun er dauði.
Stóra Bretland: Sir James Wilson Vincent Savile eða Jimmy Savile, Officer of the Most Excellent Order of the British Empire (OBE), þekktur þáttastjórnandi hjá BBC og var t.d. með þáttinn Jim‘ll Fixit sem hefur orðið að orðasambandi á Bretlandi og var fyrsti og síðasti stjórnandi tónlistarvinsældarlistans Top of the Pops var með barnagirnd og óð uppi í ljóma frægðar í að svala þessari girnd sinni. Við höfum svo sem dæmið um biskupinn sem svalaði sinni girnd á dóttur sinni en þetta er annað mál. Ekki verra eða betra en annað.
Nú þessi Jimmy karlinn var ekki aðeins frægur heldur var hann alveg sérstaklega örlátur á peninga og var í stjórn fjölda allra af góðgerðasamtaka sem aðallega voru spítalar með sjúklinga og sumir sjúklingarnir voru börn. Nú- þar sem Jimmy var svona örlátur á fé góðgerðasamtaka átti hann sérstaklega greiðan aðgang að ungum sjúklingum og á tveimur spítölum hafði Jimmy karlinn sitt eigið herbergi þar sem hann gat nauðgað börnum sem voru sjúklingar, í friði. Nú þegar gögnin benda helst til þess að þetta sé staðreynd og Jim Savile látinn þá kemur í ljós að margir hafi nefnt að þetta væri helst til einkennilegur fýr en á þá var ekki hlustað því það kæmi sér afar illa fyrir spítalann og góðgerðarsamtökin ef það væri raunin. Jimmy Savile nauðgar ekki börnum hugsaði fólk. Jújú, hann gerði það nú samt og Lance Armstrong notaði frammistöðuaukandi lyf. Súrt en svona er þetta nú.

Tuesday, October 16, 2012

Perception of false hope.


Because I think alot I tend to doubt things before me as they might not always be what the damned thing is perceived to be and wants to be perceived as. All still aboard? Let us carry on then. Tread carefully. Dark waters.