Tuesday, October 23, 2012

Kreppan.


Nú heyrum við því fleygt fram að Ísland sé á leið út úr kreppunni. Gott og vel og dreymi fallega. Einnig heyrist sagt og það stundum í fréttum eða s.k. fréttatengdu efni að önnur kreppa vofi yfir. Ísland á leið út úr kreppunni og önnur kreppa vofir yfir. Þessar tvær staðhæfingar hér að ofan eru rangar. Þar sem í raun er Ísland í uppsveiflu frá höggi kreppunnar sem hófst um mitt ár 2007 og stendur enn yfir þannig að ekki er rétt að tala um að önnur kreppa vofi yfir þar sem þetta er sama kreppan. Það tekur hins vegar afar langan tíma fyrir samfélög að falla á hnén þar sem reisnin er töluverð og munum við sennilegast deyja standandi. Nú er Evrópa að fara taka kreppuskellinn þar sem lengri tíma tekur að vinna á stærri samfélögum og Evrópa verður að teljast sem mun stærra samfélag en Íslendingasamfélagið þó svo slátturinn sé meiri í því smærra.
Nú jæja. Betra rétt en óraunhæft og raunsæi betra en bjartsýni.
Kreppan er fjárglæfrarafleiðing og við sem fjárglæfruðum ekkert eða lítið skulum bera byrðarnar. Því þeir sem stunduðu þessar fjárglæfur eru farnir og líður núna vel annarsstaðar. Það er meiriháttar. Mér líður stundum eins og við höfum öll verið saman í baði og sumir hafi ákveðið að míga í baðið því það var svo arðbært. Það fólk er ekki lengur í baðinu og hér erum við, restin að baða okkur uppúr þvaginu á spjátrungum. Jibbí og húrra fyrir þeim.

No comments: