Monday, July 30, 2012

Trouble.


Við viljum fyrir alla muni sleppa þessu öllu en hér erum við stödd. Í kyrrstöðu baráttu þar sem beðið er eftir hinu minnsta tækifæri til að ganga til atlögu af fullum krafti. Við erum með 100% athygli, 20/20 sjón og heimsmeistari í snar, allt alltílagi.
Hér stöndum við og metum stöðuna í hljóði og sjón og veigrum okkur við viprum. Ástandið er kvikt. Segi einn eitt verður ástandið kvikfimt. Kvikfimt er núna en blossann vantar. Komi blossi erum við öll í veseni en það okkar sem varpar blossanum hefur einhver líkindi á því að koma sér undan með vitundina um að varp sé núna og ráðist að næstu útgönguleið, 23%.

Tuesday, July 24, 2012

Er gestrisni að bjarga sjálfbjarga?

Mikið óskaplegum tíma og fjármunum hefur verið varið í leitarför hjá björgunarsveitunum uppá síðkastið og skal engan undra. Það var farið í að leita að ísbirni sem aldrei steig á strönd né sást en það var einn útlendingur sem sá næstum því einn, en það var selur. Þyrlan skaust á loft að leita að einhverju sem var ekki. Fólk um sextugt ákvað að ganga smá spotta en sáust hugsanlega vera snúa við og var það tilkynnt til næsta landvarðar af mestu gæsku en þessi tilkynning var ályktun en ekki vissa og því fór þyrlan á loft að leita að fólki um sextugt sem gengur í rólegheitunum yfir fjöll og fyrnindi eins og fólki um sextugu er einu lagið en hleypur ekki í offorsi. Svo var leitað að ungu pari, stúlku frá þýskalandi og dreng frá austurríki og það var svo tilkynnt sem misskilningur. Nú síðast var verið að bjarga fólki niður af einhverri hengjunni sýndist mér. Það var þá för til einhvers. Kannski heppilegast væri að upplýsa fólk um hvernig tilkynningarskyldan virkar best og hver sér um hvað fyrir hvern. Maður tilkynnir sig sjálfur á næsta áfangastað.

Sunday, July 15, 2012

Hæsta gól af hæsta hól.


Bretland gólaði hæst að vilja halda Ólympíuleikana árið 2012. Í dag er 2012 og komið að Ólympíuleikum og Bretar virðast ekki vera alveg klárir í slaginn. En hvað við erum hissa. Það hefur komið í ljós að Bretar hafi vanmetið hversu mikla öryggisgæslu þarf við svona taddara og eru nú að reyna finna fólk sem langar að öryggisgæsla en svo kemur í ljós að þetta er ekki menntaskólaball. Best væri auðvitað að við gætum bara verið vinir og hagað okkur eins og fólk en það væri barnaleg hugsun. Við erum fávitar og það þarf að bregðast við ógnum við skaða sem við gætum valdið okkur. Fávitar er víst understatement.
Evrópudómstóllinn kemur með hvern áfellisdóminn á fætur öðrum á Hæstarétt Íslands. Örsakirnar gætu verið margskonar svo sem að dómstólar hafa ekki þekkingu á íslensku hugarfari. Önnur gæti verið að þeir þekkja ekki frænda. Hlustum á þá og hættum þessu rugli.

Glaxo karlinn.

Nú er komin upp sú hugmynd að e.t.v. sé betra að vera með forvarnir gegn Alzheimer en að reyna lækna skepnuna, þar sem sú lækning er ófundin. Þetta teljum við vera algjört þjóðráð. Er ekki alltaf betra að veikjast ekki en að veikjast og vera svo læknaður af þessum veikindum. Þegar ungbörn er um að ræða þá er oft verið að byggja upp þol gegn ákveðnum vírusum í framtíðinni og því sóst eftir veikindi barna. Þetta held ég að eigi ekki við um Alzheimer. Nema auðvitað ef manni líður eitthvað betur með að gleyma, sumir dansa til að gleyma. Við skulum samt öll gera okkur grein fyrir því að lyfjafyrirtækin hafa þetta í hendi sér og eru gríðarlegur áhrifamikill iðnaður um hvernig okkur líður og hvað er læknað. Gott dæmi er þunglyndi. Nú gengur lyfjaiðnaðinum óskaplega illa að halda þessum leiðinda sjúkdóm í skefjum. Það eru sífellt fleiri rannsóknir sem sýna að þunglyndislyf eru að gera eiginlega ekki neitt. Svipað og SÁÁ að ramba inná einn auðtrúa en fá laun fyrir að trekkja þann eina auðtrúa sauð. Við getum spurt okkur af hverju alnæmi sé enn að hrella óvarið kynlíf og hvers vegna tórir Magic Johnson einn aðal leikmaður Los Angeles Lakers og var greindur með HIV veiruna fljótlega eftir andlát Freddie Mercury af þessari sömu veiru. Blessuð sé minning hans. Fljótlega eftir fyrsta hræðsluáróð flaug fiskisagan að veiran hefði sprottið af kynlífi milli manns og apa. Það var víst ekki satt. Við teljum þó að fuglaflensan og svínaflensan séu heldur ekki satt. Íslenska ríkið hefur þó séð til þess að lyfjarisinn GlaxoSmithKlein eigi fyrir salti í grautinn. Hálfvitar.

bOmama


Helst er það svo í fréttum að Barak Obama hefur svarað Mitt Romney af hörku með nýyrði. Fullur yfirlæti hrópaði hr. Obama-bOmama, að hann væri ekki að leita sér að sérfræðing í útvistun, sem tilvitnun til aðgerða Mitt Romney um hve iðinn sá sauður hefur verið við að leitast eftir ódýru vinnuafli út fyrir landsteinanna. Ónei, hr. bOmama, sagðist vera sækjast eftir innvistun. Hann er sjarmerandi, en fólk, hans eigið fólk segja sumir fjölmiðlar, eru farnir að efast um að hann sé raunverulega svartur á hörund. Hann er líka sagður hafa liðið fyrir það að hafa fengið þetta miðstéttaruppeldi sem hann fékk. Blessaður anginn.

Bastilludagurinn


Komið að lokum 14. júlí, Bastilludeginum myndu Frakkar kalla skepnuna víst. Þeir fagna því að ráðist var á og Bastilluna s.k. og hún tekin yfir. Bastillan var kastali sem hafði mörg hlutverk og eitt af því var fangelsi, fyrir oft pólitíska fanga, en annað hlutverk þessa ágæta húss var geymsla fyrir púður og vopnabirgðir. Þegar ráðist var inn, eftir að umsjónarmaður Bastillunnar hafði gefið skipun um að opna hliðin svo ekki yrði úr blóðbað, létust 95 árásarmenn en aðeins einn verjandi. Æsingurinn hefur greinilega verið það hressilegur að menn misstu sig og fóru óvart að drepa sig. Göngum hægt um gleðinnar dyr gott fólk, líka þegar það er búið að hleypa okkur inn.