Monday, May 28, 2012
The Grand scheme of things.
Peculiar times, for a word HST. Peculiar in the sense that all fear to tread
the dark waters of reality, and those who dare to tread are delusional. It
seems to be all about money. Spreading the debt as thin as possible for the Fatfew
is what we is here foh.
Wednesday, May 23, 2012
Óforbetranlegt.
Já
sko ég er líka brjálaður! Hvað er gert við glæpamenn sem fást ekki til að bæta ráð sitt, virðast ekki hafa getuna til náms og fremja manndrápsglæp á meðan betrun stendur yfir innan veggja
betrunarvistarinnar? Fara þeir á Litlalitla Hraun?
Málþóf.
Sumarið
er endanlega komið. Í dag var sumar í Rvk. og reyndar um allt land að mér
sýndist. Í Rvk. var sólin með talsverða viðveru og gustur lék um í hviðum en
það var hlýtt þegar ekki næddi í gegnum mann. Ég fylgdist grannt með málþófi á
Alþingi Íslendinga og vaskri vörn Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna berjast á
móti þingsályktunartillögu (636. mál) um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um
tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga. Nú jæja. Hreyfingin
ákvað að nefna í framhjáhlaupi að þau ætluðu, en ætla ekki lengur, að verja
ríkisstjórnina falli. Eitthvað sem Framsóknarflokkurinn var löngu búinn að
gera, að ætla en ætla ekki lengur. Það eru allsstaðar svíndýr.
Þegar rökin falla á dauf eyru eða að rökin séu ekki til staðar, fer sumt fólk að sýna óvitahegðun vegna þess að það er verið að óska eftir að eitthvað verði gert sem skarast við hagsmuni þess með barnalegu hegðunina. Þá þverr rök og annaðhvort ofbeldi eða önnur óviðeigandi hegðun tekur yfirhöndina. Á Alþingi Íslendinga getur þetta stafað af lýðræðislegu ofbeldi sem stjórnarandstaðan telur sig verða fyrir reglulega og blæs til sóknar með ræðulistina að vopni. Sumir hefðu mátt undirbúa sig betur, aðrir voru góðir með kaldhæðnina en flestir hefðu ekki átt að koma fram fyrir alþjóð og bjóða uppá leikþátt sem ekki væri skemmtilegur heldur með það að markmiði að vera langur.
Málþóf, við mælum með þessu.
Tuesday, May 15, 2012
Kýr.
Mér hefur verið tjáð að á hálendinu ferðist um hópur af villtum nautgripum og dvelji þar allan ársins hring komnir á 4. ár. Það var víst einum bónda fyrir austan sem fór að þykja vænt um skepnurnar og tengjast þeim tilfinningum sem hann gat svo ekki slitið við sláturtíð. Af þessu hlaust, eins og gefur að skilja, töluverður hnekkur á rekstrargrundvöll kúabúsins. Bóndinn fyrir austan ákvað að sleppa kúnum og gefa þeim líf og þær þustu upp til fjalla og átti enginn von á þeim í byggð á ný, sem hefur að mestu staðist að ég best veit. Reynt hefur verið að senda leiðangur að lóga þessum dýrum en vandræði urðu strax við þá uppgötvun að þessir nautgripir væru ógjarnir að halda sig við fjallvegina svo hægt yrði að ferma búkinn á bifreið sem svo væri ekið á brott. Hins vegar hefur ferðamönnum staðið ógn af þessum mannýgu, sjálfstæðu nautgripum sem þrátt fyrir harða vetur á hálendinu virðast vera að fjölga sér með hverju árinu. Orðrómurinn er að við smalamennsku á haustinn finnist reglulega yfirgefin reiðhjól uppá fjallvegum og fyrr um sumarið hafi komið útlendingur hlaupandi í hjólagalla sem var mikið niðri fyrir en hann talaði aðeins útlensku en ekki enskútlensku sem bændur fyrir austan kunna, enda með kaffihús sem opnar kl. 20:00am.
Hér er svo kýrin Harpa sem synti yfir Önundarfjörð og breytti nafninu sínu í Sæunn.
Hér er svo kýrin Harpa sem synti yfir Önundarfjörð og breytti nafninu sínu í Sæunn.
Saturday, May 12, 2012
Vision
The
fat is in the fire and finally, we are faced with the vision of a ferocious
beast. Having vision and a target, we can now commence a vital attack for the
beast never to rise again.
Saturday, May 5, 2012
Fullt tungl í suðaustri að mér sýnist.
Tönnin
er beitt. Sauðagæran er að falla en með því að jarma er hægt að koma í veg fyrir frekari aukningu í spennustigi
en hver í fjandanum er Chen Guangcheng? So far vitum við að hann er blindur kínverji
sem slapp úr rammgerðu stofufangelsi í þorpinu Dongshigu í Shandong héraði um
500km frá Peking þar sem hann að lokum rambar inn um hurðir bandaríska
sendiráðsins og þeir skella á eftir honum. Einu fréttirnar sem berast eru
hetjufréttir af því hvernig hr. Chen, með sitt góða hjarta og blindu augu hefur
brotist gegn ofvaldi og harðræði kínversku stjórnarinnar og virðist ætla hafa
betur í vinsældarkosningum enda er þetta lítið annað en X-factor for the
supposed intellects. Hr. Chen er hampað á margan hátt og nú lætur hæst að á
árum áður vann hann ötullega að vitundarvakningu á vönun kvenna og nauðugar
fóstureyðingar kínversku stjórnarinnar vegna laganna um eitt barn og eitt barn
aðeins á hjón, geri ég ráð fyrir. Nú jæja, aftur að afrekinu, Hr. Chen á víst
að hafa í skjóli nætur klifrað yfir tveggja metra háan vegg sem kínverska ríkisstjórnin
lét reisa til að halda ólátabelgnum inni. Frá húsi og að þessum tiltekna vegg
var flóðlýstur garður ásamt farsímabylgjubrenglurum en hann lét það ekki stoppa
sig. Áfram gakk, yfir 2m vegginn og varði hr. Chen svo næstu 20klst. í að mjaka
sér út í óvissuna þar sem hann að eigin sögn fellur við oftar en 200 skipti. Nú
vill svo heppilega til að hr. Chen gengur rakleitt í flasið á samaðgerðarsinna
í mannréttindabaráttunni sem ekur honum í bifreið sinni til Peking. Það gæti
verið að ég sjái hluti sem eru ekki til staðar en hér er ég tilbúinn að segja
að eitthvað sé bogið einhversstaðar.
BNA
skuldar Kína gríðarlegar fjárhæðir í peningas og var altalað síðasta sumar að
BNA myndu hugsanlega kjósa að lenda í vanskilum við Kínverja. Það að kjósa að
greiða ekki hljómar undarlega betur en að geta ekki greitt. Nú velti ég því fyrir mér af hverju
vesturheimur er kallaður vestur þegar íbúar austanmegin í austurheimi benda í
austur á vesturheim?
Logarnir
eru greinilega farnir að ná til fitunnar.
Góðar
stundir.
Thursday, May 3, 2012
The new dumb.
Once
spoken of as a new social class by my dear friend HST, may his memory live.
Today it seems that we have a whole country, hell let‘s call the whole Western
hemisphere[1] that has aspired to this/his
fine term. We are Icelanders, proud and profoundly dumb. We apparently (as I am
inside looking out), have this idea that our point of view counts in a
capitalist environment although we are hardly a market to cater for, because of
our population, or size for that matter. Grand ideas may often lead to great
achievements but this is where we Icelanders are no longer playing the fair game.
We want money for nothing, first and foremost because we have no understanding
in our history for the value of money. However, we are succumbed to the idea of
envy by others towards our worldly finery as this will show status. Therefore the
envied dominate the envious by owning things that the envious cannot get their
hands on by other means than to be dominated and this whoredome has become
common practice. The fat is in the fire and we want money, more money because money is the new black. The new dumb is a circular term[2] that will have relevance
for ages to come. However, there doesn‘t seem to be much time left. Perhaps it
is time to evaluate money in a world where nothing is for sale.
Subscribe to:
Posts (Atom)