Tönnin
er beitt. Sauðagæran er að falla en með því að jarma er hægt að koma í veg fyrir frekari aukningu í spennustigi
en hver í fjandanum er Chen Guangcheng? So far vitum við að hann er blindur kínverji
sem slapp úr rammgerðu stofufangelsi í þorpinu Dongshigu í Shandong héraði um
500km frá Peking þar sem hann að lokum rambar inn um hurðir bandaríska
sendiráðsins og þeir skella á eftir honum. Einu fréttirnar sem berast eru
hetjufréttir af því hvernig hr. Chen, með sitt góða hjarta og blindu augu hefur
brotist gegn ofvaldi og harðræði kínversku stjórnarinnar og virðist ætla hafa
betur í vinsældarkosningum enda er þetta lítið annað en X-factor for the
supposed intellects. Hr. Chen er hampað á margan hátt og nú lætur hæst að á
árum áður vann hann ötullega að vitundarvakningu á vönun kvenna og nauðugar
fóstureyðingar kínversku stjórnarinnar vegna laganna um eitt barn og eitt barn
aðeins á hjón, geri ég ráð fyrir. Nú jæja, aftur að afrekinu, Hr. Chen á víst
að hafa í skjóli nætur klifrað yfir tveggja metra háan vegg sem kínverska ríkisstjórnin
lét reisa til að halda ólátabelgnum inni. Frá húsi og að þessum tiltekna vegg
var flóðlýstur garður ásamt farsímabylgjubrenglurum en hann lét það ekki stoppa
sig. Áfram gakk, yfir 2m vegginn og varði hr. Chen svo næstu 20klst. í að mjaka
sér út í óvissuna þar sem hann að eigin sögn fellur við oftar en 200 skipti. Nú
vill svo heppilega til að hr. Chen gengur rakleitt í flasið á samaðgerðarsinna
í mannréttindabaráttunni sem ekur honum í bifreið sinni til Peking. Það gæti
verið að ég sjái hluti sem eru ekki til staðar en hér er ég tilbúinn að segja
að eitthvað sé bogið einhversstaðar.
BNA
skuldar Kína gríðarlegar fjárhæðir í peningas og var altalað síðasta sumar að
BNA myndu hugsanlega kjósa að lenda í vanskilum við Kínverja. Það að kjósa að
greiða ekki hljómar undarlega betur en að geta ekki greitt. Nú velti ég því fyrir mér af hverju
vesturheimur er kallaður vestur þegar íbúar austanmegin í austurheimi benda í
austur á vesturheim?
Logarnir
eru greinilega farnir að ná til fitunnar.
Góðar
stundir.
No comments:
Post a Comment