Sælt
veri fólkið. Það er mikið um að vera þessa dagana og af mörgu að taka sem vert
er að fara yfir.
BNA: Lance Armstrong sjöfaldur sigurvegari (1999-2005) í Tour de France hjólreiðakeppninni hefur ákveðið að hætta að neita ásökunum um að hafa notað frammistöðuaukandi lyf. Hann hefur hætt að neita en játar ekki. Hann sigraðist þó á krabbameini í eistum og má það teljast hinn vænlegasti sigur. Hann er sekur en hvaða máli skiptir það þegar það er á allra vitund að þeir sem sigra í Tour de France er á lyfjum sem ekki er verið að leita að. Það er forsenda frammistöðuaukandi lyfja að þau séu sífellt að þróa ný lyf sem ekki greinast við leitun og því alltaf einu skrefi á undan. Erfiður bissness þar sem stöðnun er dauði.

Stóra Bretland: Sir
James Wilson Vincent Savile eða Jimmy Savile, Officer of the Most Excellent Order
of the British Empire
(OBE), þekktur þáttastjórnandi hjá BBC og var t.d. með þáttinn Jim‘ll Fixit sem
hefur orðið að orðasambandi á Bretlandi og var fyrsti og síðasti stjórnandi
tónlistarvinsældarlistans Top of the Pops var með barnagirnd og óð uppi í ljóma
frægðar í að svala þessari girnd sinni. Við höfum svo sem dæmið um biskupinn
sem svalaði sinni girnd á dóttur sinni en þetta er annað mál. Ekki verra eða
betra en annað.
Nú þessi Jimmy karlinn
var ekki aðeins frægur heldur var hann alveg sérstaklega örlátur á peninga og
var í stjórn fjölda allra af góðgerðasamtaka sem aðallega voru spítalar með
sjúklinga og sumir sjúklingarnir voru börn. Nú- þar sem Jimmy var svona örlátur
á fé góðgerðasamtaka átti hann sérstaklega greiðan aðgang að ungum sjúklingum
og á tveimur spítölum hafði Jimmy karlinn sitt eigið herbergi þar sem hann gat
nauðgað börnum sem voru sjúklingar, í friði. Nú þegar gögnin benda helst til
þess að þetta sé staðreynd og Jim Savile látinn þá kemur í ljós að margir hafi
nefnt að þetta væri helst til einkennilegur fýr en á þá var ekki hlustað því
það kæmi sér afar illa fyrir spítalann og góðgerðarsamtökin ef það væri raunin.
Jimmy Savile nauðgar ekki börnum hugsaði fólk. Jújú, hann gerði það nú samt og
Lance Armstrong notaði frammistöðuaukandi lyf. Súrt en svona er þetta nú.
No comments:
Post a Comment