Friday, October 19, 2007

Sauðsvartur almúginn.

Upp hefur komist stórfellt svindl á áhorfendum sjónvarpsstöðvarinnar ITV í Bretlandi, á svokölluðum auðmeltum skemmtiþáttum (light entertainment). Í skemmtiþáttunum sem um ræðir eru áhorfendur beðnir um að taka þátt í símakosningu þar sem kosið er um uppáhalds eitt eða annað, eða það sem maður síst kann við. Greitt er svo fyrir símtalið, fyrir utan kostnað, upphæð sem rennur beint til sjónvarpsþáttarins og stöðvarinnar sem hann er sýndur á, það er ekki svindl. Svindlið fólst í því að hunsa atkvæði áhorfenda sem hringt höfðu inn og beina framvindu þáttarins eftir því sem þótti veita meiri/betri skemmtun til áhorfenda skv. Michael Grade, stjórnarformanni ITV. Er það ekki einmitt það sem fólkið vill? Trúði e-r að þannig væri í pottinn búið, að múgurinn stjórnaði framvindu þátta sem það lagði sína kaþólsku tíund í? Ég gæti trúað að það væri ekki skemmtilegt efni og langt frá því að vera auðmeltanlegt. En það eru greinilega ekki allir hættir að éta skít.

No comments: