Ef hætta steðjar
að er best að vita af því þannig að maður geti brugðist við og helst með góðum
fyrirvara. Það gefur manni tíma til að undirbúa viðbragð þegar hættan nálgast
og með réttu viðbragði ætti að vera hægt að forðast skaða. Hins vegar reynist
það oftast svo að fólk neitar að meðtaka hættuna fyrr en hún bankar hjá þeim og
óðagot sem viðbragð kann ekki góðri lukku að stýra. Því er það oft sem fólk
þylur upp hættur fyrir hvort öðru og varar við því hvað kunni að gerast. Þetta
getur verið mikil hjálp en maður verður þó að vera vakandi fyrir hættunni sem
kann að steðja að. Því þó svo að manni hafi verið kynnt hún og maður viti af
henni verður viðbragðið þrátt fyrir allt óðagot ef hún kemur manni á óvart
þegar hún birtist. Hættan, hver sem hún svo kann að reynast, mun valda meiri
skaða því ómeðvitaðri sem viðfangið er. Nú stend ég hér með sauðagæruna hálfvegis
niður öxlina og fólkið bendir enn og segir: sjáið litla lambið.
Wednesday, March 28, 2012
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment