Wednesday, September 19, 2007

Hvaðan er ísl. eþanól?

Sæl veriði, „Everything about ethanol is good, good good” (Chuck Grassley, Iowa). Hr. Ólafur Ragnar virðist vera hjartanlega sammála og það þykir mér undarlegt því ekki hélt ég að hann væri maður sem tæki ákvarðanir að óathuguðu máli. Það sem mér þykir enn undarlegra er að þetta lítur ekki út fyrir að vera bóla, heldur ætlar að verða önnur tilraun á við kjarnorku og vetni. Hvernig var það eiginlega, gekk ekkert að knýja bílana með vetni? Það þarf að brenna meira af eþanóli en bensíni til að sami kraftur myndist við brunann sem þýðir að eþanól brennur ekki hreinna en bensín né er það ódýrara. Þó svo eþanól sé ekkert annað en 180% alkahól þá er uppruni og vinnsla eþanóls langt því frá að vera sú sama. Til að mynda hefur eþanól framleitt úr sykurreyr í Brasilíu orkuhlutfallið 8/1. Það er þegar tekið er tillit til alls orku sem þarf til að rækta, flytja og verka sykurreyr í eþanól þá er orkan sem fæst úr verkun 8x meiri en sú sem hefur verið lögð í verkunina. Það er mjög fínt miðað við bensín sem hefur orkuhlutfallið 5/1. Hins vegar er eþanól sem unnið er úr korni með orkuhlutfallið 1,3/1. Það er því í raun ekkert að því að grenna bensínnotkun með eþanóli en það skiptir ÖLLU máli hvaðan það kemur og úr hverju það hefur verið unnið. Í BNA virðist eþanól ætla að verða það besta síðan niðurskorið brauð. Allir sem e-ð ætla með stjórnmál að gera hafa stökkið á vagninn og ætla ríða græna hyskinu til sigurs, Hillary Clinton, John McCain, Barack Obama og svo nú síðast John Edward. Framleiðsla á eþanóli þar í landi kemur mestmegnis, ef ekki eingöngu, frá korni. Korn er einmitt og hefur verið sú landbúnaðarvara sem hefur fengið mestu aðstoð frá yfirvöldum í BNA, 51 milljarð USD milli 1995-2005 (2x meira en hveiti). Í dag er framleiðsla eþanóls um 3-5% af eldsneytis notkun BNA en heldur yfir 20% af allri kornuppskeru sem hefur orðið til tvöföldunar á heimsverðinu á korni (mjög gott að græða, en það er vandamál með blessaða 3ja heiminn, hann á víst erfiðara með að greiða 2x hærra verð fyrir kornið sitt. En af hverju ættum við svo sem að láta okkur það varða núna... það er langt í burtu). Það er erfitt að réttlæta þessa röskun með öðru en tálsýn og blekkingum. Hættan er sú að bændur í S. og N. Ameríku fari að ryðja úr vegi regnskógum og öðrum ræktunum sem halda aftur af hlýnun jarðar fyrir korn sem hefur orkuhlutfallið 1.3/1. Þetta er ekki bóla, þetta er stórhættuleg tálsýn og vitfirring í skjóli grænna hugsjóna. Meira að segja Apaheili veit þetta og hann veit ekki neitt. Ekki éta skít. Kv. KLT.

1 comment:

Anonymous said...

Á ekkert að fara að blogga meira?