Gekk ég aleinn –
Gekk ég um dagmál
frá drykkju og leikjum,
brotnum glösum
og brunnum kveikjum.
Gekk ég aleinn, -
en annar leiddi
meyna, sem mig
til mótsins seiddi.
En vertu ekki að gráta,
veslings hjarta!
Nú leiðast þau
móti ljósinu bjarta.
-En þú hefðir leitt hana
út í þokuna svarta.
-Davíð Stefánsson, Svartar fjaðrir.(1919).
No comments:
Post a Comment