Wednesday, November 28, 2007

Almenn brot.

Stundum kemur það fyrir að maður veit að e-ð er, en þetta sem er, er ógreinanlegt. Maður getur heyrt, þefað, snert, bragðað og séð. Allt eru þetta nú brigðul verkfæri ein og sér. Manni gæti hafa heyrst fótatak en það er óljóst hvort um var að ræða fótatak konu eða karls, einnig er hægt að finna eggjaprumpulykt af hverum. Munurinn á steypu og tré er áþreifanlegur en ekki sætt eða súrt, beiskt eða rammt. Sjónin er þó mest metna skynfærið en takmarkað og brigðult á raunveruleikann líkt og hin eins og myndin hér að ofan sýnir (allar línur er beinar og láréttar). Ætli það þurfi ekki ákveðna blöndu af skynfærum til þess að maður sannfærist að e-ð sé. Ætli þegar maður hefur 2 af 5 skynfærum örvuð þá trúi maður að svo sé. Maður heyrir í báli og finnur brunalykt (almenna brotið 2/5). Maður getur einnig séð eggið sem maður ætlar að setja uppí sig og það bragðast eins og egg og til staðfestingar þá kemur eggjaprump e. 20 mín. Slíkt myndi vera almenna brotið 3/5 og hlutföllin 5/5 eru öll skynfæri örvuð.

Trúin á guð almáttugan er slík að engin skynfæri eru örvuð og því engin staðfesting. Þó er til fólk sem veit að guð er til. Maður virðist sjá svarta díla hér til hliðar þó eru þeir ekki til staðar. Er guð almáttugur svartur blettur?

Samkvæmt ofangreindu er trúin á guð almáttugan almenna brotið 0/5. Stytting almennra brota felst í því að láta teljara og nefnara fá eins lágt gildi og hægt er án þess að breyta gildi brotsins. Þau eru stytt með því að finna sameiginlega frumþætti og deila þeim í bæði teljara og nefnara. Tökum t.d. fyrrnefnda brotið 0/5. Það er alger óþarfi að brot hafi gildið 0/5 þegar það getur haft gildið 0 og er léttara að muna.

Guð er allt og allsstaðar er sennilegast sú tilgáta sem styrkustu stoðum stendur en þá er hann allteins ekkert þar sem hann er jafnaður út handan jafntogmerkis þegar brot eru einfölduð. Hann gæti þó verið annarhver fótur á fílnum hér að ofan.

No comments: