Friday, November 30, 2007

Kennari fangelsaður í Súdan vegna nafngiftar.

Bresk kona sem starfaði sem kennari hefur verið kærð og dómfelld vegna nafngiftar á bangsa í bekknum hennar. Með atkvæðagreiðslu 7 ára barna í bekknum var bangsinn nefndur Múhameð. Hún hefur verið dæmd til 15 daga fangelsisvistar en fyrir utan hrópa 1.000 manns að taka eigi hana af lífi. Mér líst illa á þetta og vona sannarlega að trylltur lýðurinn fái ekki að ráða. Myndirnar af SKY fréttastofunni sýna fólk dansandi á götum úti, með flögg, gólandi að það ætti að drepa hana fyrir slíka vanvirðingu. Mér finnst þetta brjálæði. Er þetta útaf spámanni sem slík vitfirring á sér stað? Þetta verður að stöðva og það sem fyrst.

No comments: