Thursday, November 8, 2007

Fyrirgefðu.

Vegna kvörtunar sem lögð var fram 14. okt. síðastliðinn, var ég boðaður á fund til húsfélagsins í Asparfelli.

Ég sé mér því miður ekki fært að mæta þar sem ég þarf að fara í vinnu, sem er frá 17.00 -21.00. Rita ég því þetta bréf sem er í senn afsökunarbeiðni og réttlæting á atburði helgarinnar.

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég bý í sambýli með öðru fólki, og er þar með ekki hafinn yfir reglur og bönn sem gilda í blokkinni.

Ég og stúlkan sem ég er með höfum verið saman í fjögur ár á laugardaginn var og ákváðum við að halda upp á það með pompi og pragt. Við buðum vinum og kunningjum að samgleðjast okkur og mættu þeir til okkar um 21.00. Við Sigurjón, sem er einnig leigjandi í Asparfelli 8 1L, tókum höndum saman og buðum fólki upp á veitingar og aðstöðu til að sitja og njóta þeirra. Skal það tekið fram að hvorugur hinna leigjendanna voru heima og gerði ég þá ráð fyrir að truflunin næði ekki út fyrir þá íbúð, þ.e. 1L. Fór nú samt svo að kvartað var í formann Húsfélagsins, Ólaf A. Jónsson, og kom hann yfir. Voru lætin satt að segja töluverð en samkvæmið hafði farið úr böndunum og ég ekki gert mér grein fyrir því, fyrr en kvörtunin kom. Hafði ég haldið að hljóð ætti að vera komið á fyrir kl: 23.00, en klukkan var um 22.30 er Ólafur kom. Séu það mín mistök, að það eigi að vera komið á hljóð fyrir þann tíma, biðst ég afsökunar á því.

Einn félaga minna, fór mannavillt á mér og Ólafi og kom heldur en ekki óþægilega að honum. Ekki það að ég og Ólafur séum líkir heldur vorum við í töluvert svipuðum buxum og félagi minn var ekki í aðstöðu til að sjá framan í Ólaf, þannig að hrekkurinn var ekki ætlaður Ólafi heldur mér. Ég biðst innilegrar afsökunar á þessum ægilegu mistökum fyrir hönd félaga míns og mín og vona að Ólafur sjái sér fært um að taka við þessari afsökunarbeiðni.

Var Ólafur í töluverðu uppnámi og bað mig um, á laugardeginum , að rýma herbergið daginn eftir þ.e. á sunnudeginum. Sagði Ólafur að þetta væri ekki fyrsta skipti sem kvartað væri undan þessari íbúð, en hef ég það mér til málsbóta að það hefur aldrei verið kvartað undan mér, eða á neinn hátt annan verið vandræði af mínum völdum, á meðan ég hef búið í þessu herbergi. Skal ég ekki segja til um hvort kvartað hefi verið undan hinum leigjendum herbergjanna. Þar sem ég hef enga vitneskju um það. Ég sá mér ekki fært að rýma herbergið og er því enn íbúi í Asparfelli. Tel ég Ólaf ekki hafa rétt á því, með fullri virðingu fyrir honum sem formanni húsfélagsins, að reka mig út samkvæmt IV lið 17.grein í reglum húsfélagsins, þar sem stendur orðrétt:

Geri eigandi eða annar íbúi sig sekan um gróf eða ítrekuð brot á skyldum sínum gagnvart húsfélaginu eða einhverjum félagsmanni þess getur húsfélagið eftir a.m.k. eina skriflega aðvörun krafist að hann flytji úr íbúð sinni með eins mánaðar fyrirvara.

Vona ég að þið sjáið minn hlut í málinu. Geri ég mér grein fyrir broti mínu og hef ekkert að leggja fyrir mig nema afsökun mína og loforð mitt um að slíkt hátterni og slík hávaðamengun komi ekki fyrir aftur af minni hálfu né mínum gestum.

Verð ég kominn heim um 21.30 í kvöld og þætti mér vænt um að fá að vita lyktir á þessu máli svo ég geti verið öruggur um að hafa húsakynni að kveldi dags.

Þakka ykkur fyrir!

------------------------------

No comments: